Í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun segir að Bjarni hafi yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af orkumálum, stefnumótun og stjórnun og hafi starfað innan orkugeirans í nær þrjá áratugi, þar af tæplega fimmtán ár sem stjórnandi hjá Landsvirkjun.
Sem fyrr segir var Bjarni áður forstöðumaður Þróunar jarðvarma hjá Landsvirkjun og bar þar ábyrgð á stefnumótun, áætlanagerð og framkvæmd stórra verkefna, m.a. stækkun Þeistareykjavirkjunar. Hann hefur einnig verið í fararbroddi við innleiðingu vindorku sem þriðju stoðar Landsvirkjunar, ásamt því að stýra fjölda nýsköpunar- og þróunarverkefna á sviði endurnýjanlegrar orku, segir í tilkynningu.
Bjarni er með grunngráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf í olíuverkfræði frá Heriot-Watt háskóla og doktorspróf í olíuverkfræði frá sama skóla. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi og er nýkjörinn forseti Alþjóða jarðhitasamtakanna (IGA) 2024-2026.