Elvar var í viðtali við RÚV eftir leik og var spurður að því hvernig þessi stór sigur vannst.
„Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir. Við bara föttum ekki á móti hverjum við erum að spila“, sagði Elvar en á pappírnum voru Ítalir sterkari en á föstudaginn. Leikmenn sem eru í liðum sem taka þátt í EuroLeague bættust við hópinn og brekkan því brött fyrir leik.
„Við erum bara fastir í okkar og spilum okkar leik. Frammistaðan hjá þessum strákum í dag var bara ótrúleg. Kiddi Pálss., Arnar með gott innlegg, Styrmir og Bjarni. Þetta var bara úr öllum áttum og við þurftum á þessu að halda til að eiga möguleika á sigri. Þvílíkur liðssigur.“
Svo var spurt út í leikplanið en þjálfarateymið skipti mönnum ört inn á og það var ljóst að passað var upp á að menn væru ferskir langt inn í leikinn. Sem var öfugt við það sem gert var á föstudaginn.
„Maður er alveg vanur að spila mikið í leikjum en maður fann það hvað það var mikilvægt að fá pásu á milli og strákarnir sem komu inn á voru fullir af orku og það haldi áfram að byggjast upp. Þá kemur maður endurnærður inn í leikinn aftur. Varnarplanið og hvernig við gátum brugðist við þeirra leik gaf okkur auka orku. Við vissum við hverju var að búast. Við framkvæmdum þennan leik bara fáránlega vel í dag.“
Ísland komst yfir með 14 stigum snemma leiks en lent síðan undir í upphafi seinni hálfleiks. Var það stærsti karakterinn í þessu hvernig þeir komust fram úr aftur? Hvað fór fram í leikhléunum þegar Ítalir voru með stemmninguna með sér?
„Það er einhvernveginn að ná aftur fókus í leikhléunum og svo tönglast á því að halda áfram. Það þýðir ekkert að setja hausinn niður. Við komum bara með risa play og þau komu í röðum þannig að það var auðvelt að vera jákvæður því við vissum að við ættum alltaf svar. Þetta var bara áfram áfram áfram.“
Er þetta stærsti sigur Elvars á ferlinum?
„Já mögulega. Að koma hingað til Ítalíu og enginn vonaði að við myndum stríða þeim eftir síðasta leik. Þetta er allavega uppáhalds sigurinn minn í augnablikinu.“