Skoðun

Tími fyrir breytingar – Nú er tæki­færið

Anna Sofía Kristjánsdóttir skrifar

Nú eru 4 dagar eftir til að ákveða hvað við ætlum að kjósa og hvert við viljum stefna í mikilvægum málefnum. Hægt er að taka kosningapróf á ýmsum samfélagsmiðlum en þar eru villandi svör sem ekki eru í samræmi við stefnuskrá einstakra flokka og þar á meðal Lýðræðisflokksins. Kjosturett.is hefur uppfært sitt kosningapróf en aðrir eru enn með misvísandi svör við einstaka spurningum. Þetta er miður þar sem margir óákveðnir kjósendur nota kosningaprófin til að ákveða hvað þeir muni kjósa á laugardaginn 30.11.2024.

Í stuttu máli er stefna Lýðræðisflokksins þessi:

Lýðræði: Við viljum standa vörð um frelsi, sjálfstæði, fullveldi og menningararfleifð þjóðarinnar með áherslu á beint lýðræði, mannréttindi, löggæslu og örugg landamæri með tryggum yfirráðum þjóðarinnar yfir auðlindum til lands og sjávar.

Fullveldi: Vinna ber með öðrum þjóðum í anda frelsis, jafnræðis og lýðræðis. EES-samninginn verður tekinn til heildarendurskoðunar. Ísland segi sig frá orkupökkum ESB og hafnar innleiðingu á Bókun 35 í íslensk lög sem gefur lögum ESB forgang fram yfir íslensk lög. Löggjafarvaldið á að vera hjá Alþingi Íslendinga.

Skattar og húsnæðismál: Hallalaus fjárlög eiga að vera meginreglan. Lýðræðisflokkurinn mun beita sér fyrir lögbundnu 4% vaxtaþaki á stýrivexti ásamt því að taka húsnæðislið út úr vísitölu neysluverðs.

Umhverfismál: Landsvirkjun og Landsnet verði áfram í eigu þjóðarinnar. Íslenskum heimilum og almennri atvinnustarfsemi sé tryggður forgangur að raforku umfram stóriðju. Náttúruperlur verði verndaðar og vatns- og jarðvarmaorka verði nýtt í jafnvægi við náttúruna.

Velferðamál: Bætur almannatrygginga skulu hækkaðar til samræmis við hækkun launavísitölu. Tryggja skal að tekjur skerðist ekki við greiðslur úr almannatryggingum. Öryrkjum verði auðveldað að komast aftur inn á atvinnumarkað. Auðvelda 67 ára og eldri að halda áfram að vinna án greiðslu félagsgjalda og iðgjalda í lífeyrissjóð.

Atvinnumál: Leiðrétta þarf valdaójafnvægi milli stórútgerðar og almannahagsmuna. Búa sjávarútvegi skilyrði til að sækja fram, á jafnræðisgrunni. Gera bændum kleift að stunda arðbæran og vistvænan búskap. Matvælaframleiðsla og ilrækt eiga rétt á sama orkuverði og stóriðjan. Stuðla að aukinni framleiðni hérlendis, efla hagvöxt og tryggja þar með hagsæld og framfarir á öllu Íslandi m.a. með uppbyggingu vegakerfis.

Útlendingamál: Lýðræðisflokkurinn vill verja landamæri Íslands. Full stjórn verði tekin á landamærum. Enginn komi til Íslands nema með heimild íslenskra stjórnvalda eða með vegabréfsáritun. Tekin verður upp samvinna við hin Norðurlöndin og lært af því sem miður hefur farist.

Menntamál: Auka ber valfrelsi á öllum sviðum menntunar. Skólanámskrá verði einfölduð og einstaka skólum og kennurum verði gefið meira frjálsræði til að setja sínar áherslur. Efla þarf iðnmenntun á Íslandi með uppbyggingu og jákvæðu viðhorfi til iðngreina. Skólastarf efli gagnrýna hugsun og miði ekki að innrætingu.

Vonandi hvetur þetta fólk til að kynna sér nánar stefnu Lýðræðisflokksins á Stefna | Lýðræðisflokkurinn

Höfundur er í 6. sæti á lista Lýðræðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.

www.kjosumxl.is




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×