Chelsea komst upp að hlið Arsenal í öðru til þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 heimasigur á Aston Villa í dag. Tottenham náði enn á ný ekki að fylgja á eftir sigurleik.
Chelsea vann sannfærandi sigur á Aston Villa þar sem tvö markanna komu í fyrri hálfleiknum.
Nicolas Jackson kom liðinu í 1-0 á 7. mínútu en Enzo Fernández bætti við öðru makri eftir stoðsendingu frá Cole Palmer á 36. mínútu.
Þriðja markið skoraði Cole Palmer á 83. mínútu eftir stoðsendingu frá Noni Madueke.
Chelsea liðið lítur vel út og ætlar að vera með í titilbaráttunni fyrir alvöru í vetur.
Tottenham burstaði Mancheste City 4-0 á útivelli um síðustu helgi en varð að sætta sig við 1-1 jafntefli við Fulham á heimavelli sínum í dag. Spurs komst yfir og var manni fleiri síðustu tíu mínútur leiksins en það dugði ekki.
Þetta byrjaði ágætlega fyrir Tottenham því Brennan Johnson kom liðinu í 1-0 á 54. mínútu eftir stoðsendingu frá Timo Werner.
Tom Cairney jafnaði metin þrettán mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Alex Iwobi. Cairney kom inn á sem varmaður og þetta var fyrsta markið hans í deildinni síðan í desember 2023.
Cairney entist þó ekki allan leikinn því hann fékk að líta rauða spjaldið á 82. mínútu.