Albert kom inn á sem varamaður á 74. mínútu, fjórum mínútum eftir að Riccardo Sottil kom Fiorentina yfir. Aðeins mínútu eftir að Albert kom inn á jafnaði Sebastiano Esposito fyrir Empoli.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2 og úrslitin réðust því í vítakeppni. Albert tók fyrstu spyrnu Fiorentina og skoraði úr henni. Christian Kouame og Danilo Cataldi skoruðu einnig úr sínum spyrnum fyrir Fiorentina en Luca Ranieri og Moise Kean brást bogalistin. Á meðan skoraði Empoli úr fjórum af fimm spyrnum sínum.
Annað Íslendingalið, Kortrijk, tapaði einnig í vítakeppni, 0-1 fyrir Antwerp, í belgísku bikarkeppninni.
Freyr Alexandersson er þjálfari Kortrijk en Patrik Sigurður Gunnarsson lék ekki með liðinu í kvöld.
Andri Lucas Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekknum þegar Gent tapaði fyrir Royale Union, 3-2, í belgíska bikarnum.
Sverrir Ingi Ingason lék ekki með Panathinaikos sem sigraði Atromitos, 1-2, í grísku bikarkeppninni. Hörður Björgvin Magnússon er enn frá vegna meiðsla hjá Panathinaikos.