Í fréttatilkynningu frá Happdrætti Háskóla Íslands segir að allar götur síðan hafi sá gamli átt miðann sem skilaði honum vinninginn. Í gegnum tíðina hafi hann unnið fjölda vinninga en vinningur kvöldsins sé sá stærsti.
Fyrsti vinningurinn í Aðalútdrættinum, sjö milljónir króna, féll á trompmiða og því fimmfaldaðist vinningsupphæðin og endaði í 35 milljónum króna.
„Miðaeigandinn ætlaði ekki að trúa eigin eyrum þegar hann fékk símtal frá Happdrættinu þar sem honum var tilkynnt um vinninginn. Það má með sanni segja að vinningurinn komi sér vel enda um fimm manna fjölskyldu með unga tvíbura og leikskólabarn að ræða. Miðaeigandinn sagði að það munaði svo sannarlega um 35 skattfrjálsar milljónir fyrir unga fjölskyldu sem væri að koma undir sig fótunum,“ segir í fréttatilkynningunni.
Fram kemur að útdráttur kvöldsins hafi verið lokahnykkur á 90 ára afmælisári Happdrættis Háskóla Íslands. Á árinu hafa 48.926 manns skipt á milli sín alls 1.914.655.000 kr.
Fyrir utan vinningshafa kvöldsins vann einn miðaeigandi fimmtíu milljónir króna í maí, tólf miðaeigendur fengu sjö skattfrjálsar milljónir hver árið 2024 og átta vinningshafar fengu 2,5 milljónir króna hver. Á afmælisárinu hafa 180 einstaklingar fengið eina milljón króna í vinning í Happdrætti Háskólans á afmælisárinu.
Sævar í Nussun ekki sá heppni
Sævar Breki Einarsson, annar meðlimur tónlistartvíeykisins Nussun, og Guðrún Lóa Sverrisdóttir kærasta hans, eignuðust tvíbura þann 6. desember. Þrátt fyrir það segist hann ekki vera hinn heppni nýbakaði tvíburafaðir sem vann milljónirnar 35. Frá því greinir hann í Instagram sögu í kvöld.
