Viðskipti innlent

Breytir gömlu heilsu­gæslunni í sex í­búðir

Lovísa Arnardóttir skrifar
Gámar eru fyrir utan húsið svo hægt sé að henda innan úr því áður en húsinu verður breytt.
Gámar eru fyrir utan húsið svo hægt sé að henda innan úr því áður en húsinu verður breytt. Vísir/Vilhelm

Hekla fasteignir hefur keypt fasteign að Drápuhlíð 14 til 16 þar sem áður var heilsugæsla. Félagið er í eigu forstjóra Heklu, Friðberts Friðbertssonar. Heilsugæslan flutti í Skógarhlíð sumarið 2023. Eignina keypti Friðbert af Reykjavíkurborg og ríkissjóði á um 341 milljón. 

Greint er frá kaupunum í Viðskiptablaðinu. Þar kemur fram að Friðbert ætli að breyta húsnæðinu í sex íbúðir og að nýtt hverfisskipulag geri ráð fyrir að það megi. Þá segir að á næstu dögum muni tiltekt hefjast í húsinu. Búið er að koma fyrir gámi og er vinna hafin í eigninni.

Í sumar var fjallað um það að Hjallastefnan hefði sent fyrirspurn til skipulagsfulltrúa borgarinnar um eignina sem var svo vísað til verkefnastjóra samkvæmt fundargerð.

Í greinargerð kemur til dæmis fram að húsið sé byggt árið 1958 og sé tvílyft. Jákvætt var tekið í erindi Hjallastefnunnar en þó tekið fram að nauðsynlegt yrði að endurheimta lóð til að skapa leiksvæði fyrir börn í stað bílastæðis sem er þar núna.

51 milljón til borgarinnar

Á fundi borgarráðs þann 7. nóvember var svo lagt fyrir bréf frá fjármála- og áhættustýringarsviði borgarinnar um kaup á fasteigninni þar sem óskað var eftir því að borgarráð samþykkti tilboð Heklu fasteigna í kaup á 15 prósenta hlut borgarinnar í eigninni. Þar kom söluverðið fram og að hlutur borgarinnar yrði 51.165.000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×