Fótbolti

Hákon skoraði sigur­mark Lille í Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson skoraði mikilvægt mark fyrir Lille í Meistaradeildinni í kvöld.
Hákon Arnar Haraldsson skoraði mikilvægt mark fyrir Lille í Meistaradeildinni í kvöld. Getty/ Image Photo

Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var hetja franska liðsins Lille í Meistaradeild Evrópu í fótbolta i kvöld.

Hákon kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 3-2 sigri á austurríska félaginu Sturm Graz.

Hákon skoraði með þrumuskoti utarlega úr vítateignum en markið hans kom á 81. mínútu leiksins.

Osame Sahraoui og Mitchel Bakker komu Lille í 2-0 í fyrri hálfleiknum en gestunum tókst að jafna með marki í uppbótatíma fyrri hálfleiks og öðru marki í byrjun þess seinni.

Mörk Graz skoruðu Otar Kiteishvili og Mika Biereth.

Hákon kom inn á völlinn á 80. mínútu og aðeins mínútu síðar var hann búin að skora.

Markið skoraði hann eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Jonathan David.

Þetta er fyrsta mark hans í Meistaradeildinni á þessu tímabili en hann skoraði fyrir FC Kaupmannahöfn á móti Dortmund í nóvember 2022.

Eftir þennan mikilvæga sigur er Lille í sjötta sætinu með þrettán stig.

Atletico Madrid vann á sama tíma 3-1 sigur á Slovan Bratislava. Antoine Griezmann skoraði tvö mörk og Julián Álvarez kom liðinu í 1-0. Atletico er í tíunda sæti með tólf stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×