Innlent

Enn hirtir nefndin Ómar

Árni Sæberg skrifar
Ómar Valdimarsson, til vinstri, birti persónuupplýsingar umbjóðenda sinna og tölvupóstsamskipti við þau. Einar Hugi Bjarnason, til hægri, hefur tekið að sér hagsmunagæslu fyrir hönd fólksins og segir þau íhuga að kæra Ómar fyrir birtinguna.
Ómar Valdimarsson, til vinstri, birti persónuupplýsingar umbjóðenda sinna og tölvupóstsamskipti við þau. Einar Hugi Bjarnason, til hægri, hefur tekið að sér hagsmunagæslu fyrir hönd fólksins og segir þau íhuga að kæra Ómar fyrir birtinguna.

Úrskurðarnefnd lögmanna hefur áminnt Ómar R. Valdimarsson fyrir margvísleg brot á siðareglum lögmanna í tengslum við mál ungs pars sem leitaði til hans til innheimtu flugbóta. Eitt brotið snýr að birtingu persónuupplýsinga um parið á Facebook. Parið hefur kært Ómar til lögreglu vegna birtingarinnar. Ómar mun leita til dómstóla til að fá úrskurðinum hnekkt.

„Mér finnst þessi úrskurður algjörlega með ólíkindum. Þarna eru fjölmörg atriði sem lögmaðurinn hefur ekki gætt að. Hann gætir ekki að grundvallaratriðum eins og að hafa samráð við sína umbjóðendur fyrir málshöfðunina. Hann upplýsir ekki um að flugfélagið hafi samþykkt að greiða bætur heldur heldur áfram með málið. Lögmaðurinn upplýsir síðan ekki þetta unga par þegar niðurstaða málsins liggur fyrir,“ segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður sem gætir hagsmuna parsins í málinu.

Höfðaði mál til innheimtu þegar greiddrar kröfu

Vísir hefur fjallað nokkuð ítarlega um málið. Það á rætur að rekja til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli parsins á hendur ítalska flugfélaginu Neos. Flugfélagið var sýknað af öllum kröfum parsins, enda hafði félagið þegar greitt út staðlaðar bætur. Parið var dæmt til að greiða flugfélaginu málskostnað, sem Ómar hefur reyndar sagst ætla að taka á sig.

Kærður til lögreglu

Einar Hugi segir þau brot á siðareglunum ekki þau alvarlegustu.

„Það sem mér finnst alvarlegast í þessu máli er það sem lýtur að háttsemi lögmannsins í kjölfarið. Þá er ég að vísa í þessa færslu á Facebook, þar sem hann birtir persónuupplýsingar um mína umbjóðendur og trúnaðargögn í opinni Facebook-færslu. Það kemur ekki á óvart að úrskurðarnefndin geri alvarlegar athugasemdir við það.“

Hann greindi frá því í mars að kvartað hefði verið til úrskurðarnefndar lögmanna og Persónuverndar vegna birtingar upplýsinganna og að málið yrði kært til lögreglu.

Hann staðfestir að kæran hafi verið lögð fram og málið sé komið í farveg hjá lögreglu.

Ekki heimilt að rjúfa þagnarskylduna

Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar, sem Vísir hefur undir höndum, segir að hvað birtingu upplýsinganna varðar hafi Ómar byggt á því að honum hafi verið nauðsynlegt að birta umræddar upplýsingar og gögn til þess að verjast rangfærslum parsins í yfirlýsingu þess til fjölmiðla vegna málsins. 

Að mati nefndarinnar hafi Ómar ekki sýnt fram á að nokkuð sem fram kom í samtali eða yfirlýsingu parsins til fjölmiðilsins hafi orðið til þess að honum hafi verið heimilt að rjúfa þagnarskyldu sem á honum hvíldi gagnvart parinu með þeim hætti sem hann gerði. Að mati nefndarinnar hafi Ómar brotið gegn trúnaðar- og þagnarskyldu sinni gagnvart sóknaraðilum með birtingu viðkvæmra persónuupplýsinga þeirra.

Átti von á áminningu

Í úrskurðinum segir að Ómar hafi brotið gegn bæði lögum um lögmenn og siðareglum lögmanna með háttsemi þeirri sem Einar Hugi tíundar hér að framan.

Að mati nefndarinnar hafi hann gert á hlut parsins með háttsemi sem telja verði ámælisverða. Því yrði ekki hjá því komist að veita honum áminningu. 

Með hliðsjón af niðurstöðu málsins og að gögn málsins beri með sér að parið hafi notið lögmannsaðstoðar telji nefndin rétt að gera Ómari að greiða parinu óskipt að álitum 150 þúsund krónur.

Ómar stakk niður penna hér á Vísi nýverið þar sem hann greindi frá því að hann byggist við því að fá þrjár áminningar hið minnsta frá úrskurðarnefnd lögmanna, sem hann kallaði úrskurðargrautinn.

Í samtali við Vísi segir Ómar að umræddur úrskurður sé sá sem hann bjóst við. Tveir aðrir sem hann bjóst við hafi verið kveðnir upp sama dag. Þeir hafa ekki verið birtir. Hann muni stefna úrskurðinum til ógildingar. „Það eru hreinar línur.“

Þá ítrekar hann það sem hann ritar í greininni hér að ofan, að það sé furðulegt að lögmenn í beinni samkeppni við hann telji sig hæfa til að úrskurða í slíkum málum.


Tengdar fréttir

Ómar fær fyrir ferðina

Neytendastofa segir Esju Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, hafa verið með villandi og ranga upplýsingagjöf á vef sínum Flugbaetur.is þar sem ferðalöngum er boðið upp á aðstoð við innheimtu skaðabóta.

Segir Ómar hafa hótað pari málsókn vegna viðtals

Par segir Ómar Valdimarsson lögmann hafa hótað þeim málsókn eftir að þau sögðu hann hafa höfðað dómsmál fyrir þeirra hönd án vitneskju þeirra. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebook og sagði þau skorta lesskilning. Parið skoðar hvort tilefni sé til að kæra birtingu Ómars á persónuupplýsingum þeirra og íhuga að kvarta yfir honum til úrskurðarnefndar lögmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×