Fótbolti

Þáði milljarð í mútur fyrir að velja menn í lands­liðið

Sindri Sverrisson skrifar
Li Tie verður í fangelsi næstu tuttugu árin, samkvæmt dómnum í dag.
Li Tie verður í fangelsi næstu tuttugu árin, samkvæmt dómnum í dag. Getty/Neville Hopwood

Kínverjinn Li Tie, fyrrverandi leikmaður Everton, hefur verið dæmdur í tuttugu ára fangelsi fyrir meðal annars stórfellda spillingu í starfi sínu sem landsliðsþjálfari Kína.

Li Tie, sem er 47 ára gamall, spilaði með mönnum á borð við Wayne Rooney hjá Everton í byrjun þessarar aldar. Hann er stórt nafn í kínverskum fótbolta og þjálfaði kínverska landsliðið í tvö ár til loka ársins 2021.

Hann er jafnframt þekktastur þeirra sem sóttir hafa verið til saka eftir rannsókn á spillingu í kínverskum fótbolta.

Dómur yfir Li Tie féll í Wuhan í Kína í dag en samkvæmt ríkismiðlinum CCTV þáði hann næstum því 51 milljón jena, eða sem samsvarar næstum milljarði íslenskra króna, í mútur fyrir að velja ákveðna leikmenn í kínverska landsliðið eða hjálpa þeim að fá samninga hjá félagsliðum.

Li tie í baráttu við Cristiano Ronaldo í leik með Everton á sínum tíma.Getty/Martin Rickett

Ekki nóg með það heldur varði Li og félagið sem hann stýrði, Wuhan Zall, samtals þremur milljónum jena, eða um 57 milljónum króna, í mútur til þess að hann yrði landsliðsþjálfari.

Li var einnig sakaður um hagræðingu úrslita frá því þegar hann var þjálfari í kínversku deildinni á árunum 2015-2019.

Li og Sun Jihai úr Manchester City skráðu sig í sögubækurnar sem fyrstu kínversku leikmennirnir í ensku úrvalsdeildinni, árið 2002. Li lék 29 leiki á sinni fyrstu leiktíð með Everton og var einnig í kínverska landsliðinu sem spilaði á HM í fyrsta sinn árið 2002, í Suður-Kóreu og Japan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×