Innherji

Líf­eyris­sjóðir setja stefnuna á auknar fjár­festingar í er­lendum hluta­bréfum

Hörður Ægisson skrifar
Lífeyrissjóðir fjárfesta að jafnaði ekki með beinum hætti í erlendum hlutafélögum heldur einkum í gegnum vísitölusjóði.
Lífeyrissjóðir fjárfesta að jafnaði ekki með beinum hætti í erlendum hlutafélögum heldur einkum í gegnum vísitölusjóði. Vísir/Getty

Þrír lífeyrissjóðir, sem eru samanlagt með um þúsund milljarða eignir í stýringu, setja allir stefnuna á að auka talsvert við vægi sitt í erlendum hlutabréfum á nýju ári á meðan minni áhersla verður á hlutabréfin hér heima. Fyrr á árinu færði Lífsverk stýringu á séreignarleiðum upp á tugi milljarða innanhús til sjóðsins samhliða því að setja stóraukna áherslu á fjárfestingar í erlendum hlutabréfum.


Tengdar fréttir

Minni áhersla á inn­lend hluta­bréf og vilja auka vægi er­lendra skulda­bréfa

Tveir af allra stærstu lífeyrissjóðum landsins, langasamlega umsvifamestu fjárfestarnir á markaði, hafa sett sér þá stefnu fyrir komandi ár að draga heldur úr vægi innlendra hlutabréfa í eignasafni sínu á meðan áherslan verður meðal annars á að byggja upp stærri stöðu í erlendum skuldabréfum. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins segir að eftir erfið ár og verðlækkanir á íslenskum hlutabréfamarkaði þá megi samt vænta þess að tækifæri skapist fyrir langtímafjárfesta og meiri líkur séu á góðri ávöxtun til lengri tíma litið.

Gjald­eyris­kaup líf­eyris­sjóða skreppa saman um fjórðung

Talsvert hefur hægt á kaupum lífeyrissjóðanna á erlendum gjaldeyri á undanförnum mánuðum samhliða meðal annars því að fjármagnsinnflæði í íslensk hlutabréf og ríkisskuldabréf var nánast hverfandi. Eftir að hafa veikst nokkuð í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, hefur gengi krónunnar styrkst undanfarið og er að nálgast að nýju gildið 150 á móti evrunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×