Hákon Arnar var að leika sinn fjórða leik eftir að hafa verið frá vegna meiðsla og hefur heldur betur átt góða endurkomu. Hann skoraði í deildarleik gegn Brest um síðustu helgi og tryggði Lille 3-2 sigur gegn Sturm Graz í Meistaradeildinni í vikunni.
Andstæðingar Lille í dag var lið Marseille sem var í 2. -3. sæti fyrir leikinn og með þremur stigum meira en Lille. Það voru heimamenn í Marseille sem tóku frumkvæðið í dag þegar Quentin Merlin skoraði á 17. mínútu og framherjinn Neil Maupey var afar nálægt því að tvöfalda forystuna í upphafi síðari hálfleiks þegar hann skaut í innanverða stöngina á marki Lille eftir mistök í vörn gestanna.
Hákon Arnar var tekinn af velli á 81. mínútu og sjö mínútum síðar jafnaði Bafode Diakite metin fyrir Lille og tryggði gestunum mikilvægt stig.
Eftir jafnteflið er Lille nú ósigrað í síðustu ellefu leikjum en liðið tapaði síðast gegn Sporting í Meistaradeildinni þann 17. september.