Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Samúel Karl Ólason skrifar 22. desember 2024 10:41 Blake Livel segist vonast til að varpa ljósi á aðferðir sem notaðar eru til að þakka í fólki sem lætur heyra í sér og hjálpa öðrum sem gætu orðið skotmörk sambærilegra herferða. AP/Scott A Garfitt Blake Lively, leikkona, hefur sakað Justin Baldoni, leikstjóra myndarinnar It ends with us og mótleikara hennar í myndinni, um kynferðislegt áreiti og áróðursherferð í þeim tilgangi að rústa orðspori hennar. Lively hefur lagt fram kvörtun gegn Baldoni, í undirbúningi fyrir lögsókn.
Kvörtunin beinist samkvæmt blaðamönnum AP fréttaveitunnar sem hafa komið höndum yfir hana, að Baldoni, framleiðslufyrirtæki It ends with us og kynningarfulltrúa Baldoni. Lively sakar Baldoni og framleiðslufyrirtækið um umfangsmikla áróðursherferð gegn henni, eftir að hún og Ryan Reynolds, eiginmaður hennar, tjáðu sig við forsvarsmenn myndarinnar um hið meinta áreiti og varhugaverða hegðun Baldoni og Jamey Heath, eins framleiðanda kvikmyndarinnar. Þessi herferð er sögð hafa meðal annars snúist um að dreifa ásökunum gegn henni á samfélagsmiðlum og sverta ímynd hennar á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Lively segir markmiðið hafa verið að grafa undan trúverðugleika hennar og rústa orðspori hennar, ef ske kynni að hún myndi gera ásakanir sínar opinberar. Samhliða því að grafa undan Lively, er herferðin sögð hafa snúist um að auka trúverðugleika Baldoni. Blaðamenn New York Times hafa eining komið höndum yfir skilaboð milli fólksins sem sagt er hafa tekið þátt í þessari herferð. Í einu tilfelli sendir kynningarfulltrúi Baldoni og framleiðslufyrirtækisins skilaboð til krísustjórnanda sem í stóð að „hann“ vildi að hægt væri að grafa „hana“. „Þú veist að við getum grafið hvern sem er,“ svaraði Melissa Nathan, áðurnefndur krísustjórnandi. Á einum tímapunkti sendi Baldoni hlekk á samfélagsmiðlafærslu þar sem fræg manneskja var sökuð um fautaskap en sú færsla hafði fengið um nítján milljónir áhorfa. „Þetta er það sem við þurfum.“ Krísustjórnandinn lagði skömmu síðar fram tillögu um „órekjanlega“ herferð gegnum verktaka á samfélagsmiðlum. Samþykktu að hætta að ræða kynlíf og klám á tökustað Í yfirlýsingu til New York Times segist Lively vonast til þess að lögsókn hennar muni varpa ljósi á þessar aðferðir sem notaðar séu til að skaða fólk sem lætur heyra í sér og hjálpa öðrum sem gætu orðið skotmörk sambærilegra herferða. Í samtali við AP segir lögmaður Baldoni að ásakanir Lively séu innihaldslausar og svívirðilegar. Þá segir hann enga herferð hafa verið setta á laggirnar til að grafa undan Lively. Þess í stað hafi kynningarfulltrúi og krísustjórnandi verið ráðinn vegna margra krafna og hótana leikkonunnar við framleiðslu kvikmyndarinnar. Meðal annars hafi hún hótað að taka ekki þátt í kynningarstarfinu fyrir frumsýningu It ends with us. Í kvörtun Lively kemur fram að hún, Baldoni og aðrir sem að kvikmyndinni komu hafi á fundi samþykkt að framfylgja ákveðnum reglum þegar taka þurfti upp fleiri atriði fyrir myndina í aðdraganda útgáfu hennar. Þær kröfur hafi meðal annars falið í sér að ekki mætti sýna fleiri myndir og myndbönd af nöktum konum á tökustað og ekki mætti lengur tala um kynlíf, klám eða kynfæri. Einnig hafi Baldoni samþykkt að tala ekki við einkaþjálfara leikkonunnar um þyngd hennar, né spyrja hana um trú hennar eða tala um látinn föður hennar. Baldoni mun einnig hafa verið meinað að ganga inn í hjólhýsi hennar á tökustað eða fara í förðunarherbergið meðan hún var þar fáklædd. Justin Baldoni, leikstjóri og annar aðalleikara It ends with us.AP/Evan Agostini Heiðaður fyrir baráttu fyrir hönd kvenna Eftir að It ends with us kom út varð Lively fyrir fjölda högga gegn orðspori hennar. Gömul ummæli hennar voru dregin fram og hún sökuð um að vera ófagmannleg, erfið í samvinnu og fauti svo eitthvað sé nefnt. NYT segir orðspor hennar hafa orðið fyrir skemmdum, ef svo má segja, en slíkt hafi ekki komið fyrir Baldoni. Hann hafi til að mynda heiðraður fyrr í þessum mánuði á viðburði þar sem menn sem standa við bak kvenna, berjast gegn kynbundnu ofbeldi og ýta undir jafnrétti voru heiðraðir.
Hollywood Bandaríkin Mest lesið Eiga nú glöðustu hunda í heimi Lífið Lést eftir að hafa fallið úr bíl á ferð Lífið Brúðkaup ársins 2024 Lífið Björn Ingi leikur í ofurhetjumynd Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Króli trúlofaður Lífið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr hryllingstrylli af Vestfjörðum Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Emilia Pérez og The Bear með flestar tilnefningar til Golden Globe „Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Barry Keoghan leikur Bítil Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Sjá meira