„Aðsóknin var ansi mikil í desember, mikið sótt í viðtalsþjónustuna til dæmis og við þurftum að bæta við dögum. Á aðfangadagskvöld var mjög rólegt í athvarfinu. Þetta er alltaf frekar ófyrirsjáanlegt hvernig er hjá okkur,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.
Hún segir að ásókn hafi mest aukist í viðtalsþjónustuna.
„Athvarfið siglir frekar jafnt í gengum árin en aðsóknin í viðtalsþjónustuna er alltaf að aukast en því miður vegna húsnæðis þá höfum við ekki getað stækkað hana neitt mikið, þannig að við erum að veita svipað mörg viðtöl í ár eins og í fyrra,“ segir Linda.
„Um leið og við flytjum í nýtt athvarf, sem við erum að byggja núna, þá sjáum við fram á að geta boðið upp á aukna viðtalsþjónustu. Þá verðum við með fleiri rými. Við finnum það að það eru fleiri konur að sækjast í að koma í viðtöl, sem eru ekki að koma í dvöl en vilja fá ráðgjöf.“
Náðu að koma konum fyrir í íbúðum
Komið hafa jól þar sem athvarfið hefur verði troðfullt.
„Og það er alltaf mjög hátíðlegt í athvarfinu, sama hversu margar eru. Við höldum alltaf mjög hátíðleg jól og er með jólatré og allt það.“
Nú hafi tekist að koma flestum þeim sem voru í athvarfin fyrir í búsetubrúnni.
„Sem eru íbúðir sem við eigum sem konur geta stundum farið í eftir að hafa verið hjá okkur í athvarfinu og það voru nokkrar konur og börn, sem við náðum að færa úr athvarfinu í búsetubrú fyrir jólin þannig að þau gátu haldið sín eigin jól,“ segir Linda.
„Þá erum við að setja svolítið kraftana í að aðstoða þær konur líka. Þetta er mjög oft erfitt, þó þú sért kominn út úr ofbeldinu að koma undir þig fótunum og að koma þér af stað aftur út í lífið. Þannig að við höfum verið að setja líka töluverðan kraft í að aðstoða þær konur og börnin sem þar búa.“