Lögreglu barst tilkynning skömmu fyrir klukkan eitt eftir miðnætti en við aðgerðirnar á Kjalarnesi í nótt naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.
„Það virðist hafa verið gleðskapur í húsi þar og komið til einhverra átaka, eitthvað ósætti og í kjölfarið þá er maður stunginn og tveir aðrir særðir með hnífi og einn alvarlega slasaður fluttur á slysadeild og fer á gjörgæslu í kjölfarið, fær stungu í brjósthol. Hinir tveir slösuðu fara af slysadeild mjög fljótlega, útskrifaðir,“ segir Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðayfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hún kveðst ekki geta sagt til um hvort einhverjir þeirra sem eiga í hlut hafi áður komið til kasta lögreglu. Ekki liggur alveg ljóst fyrir hve margt fólk var í húsinu en rannsókn málsins stendur enn yfir.
„Svo erum við bara að ná utan um þetta núna. Hvað gerðist og hvers vegna og af hverju, hvað kemur upp á. Það tekur oft svolítinn tíma að púsla því saman,“ segir Elín Agnes. „En það var svolítið af fólki, og áramótagleði.“
Taka skýrslu af fjölda fólks
Allir hlutaðeigandi eru karlmenn á fertugs og fimmtugsaldri, í einhverjum tilfellum kunna hinir særðu og hinir grunuðu að vera þeir sömu.
Hvað eru þetta margir í heildina sem eru viðrinir þetta mál?
„Við eigum aðeins líka eftir að ná utan um það. Það er náttúrlega mikið uppnám á vettvangi þegar svona er og þarf að taka skýrslur af fjölda fólks og púsla þessu öllu saman rétt. En það er spurning hvort að það sé að hluta til kannski, hafi verið átök milli manna og einhverjir þeirra séu særðir efir, hafi orðið fyrir árás eftir átök,“ svarar Elín.
Hún á ekki von á því að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir fleirum eins og sakir standa nú. Sá er var á gjörgæslu hefur nú verið fluttur á almenna deild. „Tveir þeirra voru með minniháttar áverka og útskrifaðir í morgun en svo er það einn sem var á gjörgæslu þar til bara fyrir mjög skömmu síðan, þá var hann fluttur á almenna deild, þannig að það lítur betur út,“ segir Elín.