Formaður undirbúningsnefndar Alþingis um kosningu þingmanna segir of snemmt að segja til um hvort ástæða sé til endurtalningar atkvæða í Suðvesturkjördæmi eins og farið hefur verið fram á í kæru. Ekkert bendi til annars en atkvæði sem þar voru greidd í nýafstöðnum kosningum séu geymd með tryggum hætti.

Undirbúningsnefnd Alingis fyrir rannsókn nýafstaðinna kosninga hóf störf á miðvikudag í síðustu viku. Nefndin er skipuð fulltrúum allra þingflokka undir formennsku Dags B. Eggertssonar þingmanns Samfylkingarinnar. Hann segir það skýrast eftir því sem líður á vikuna hversu langa tíma nefndin þurfi til að ljúka störfum sínum. Skýrsla landskjörstjórnar um framkvæmd síðustu alþingiskosninga liggi til grundvallar störfum nefndarinnar.
„Við fengum kynningu á henni frá landskjörstjórn fyrir helgi og erum núna að hefjast handa við að fara yfir hana kafla fyrir kafla,“ segir Dagur.
Mörgum er uppákoman í Norðvesturkjördæmi eftir kosningarnar 2021 í fersku minni þar sem verulegir ágallar komu í ljós á varðveislu atkvæða og endurtalningu þeirra, sem leiddi til þess að fimm jöfnunarþingmenn sem áður var talið að hefðu náð kjöri duttu út og fimm aðrir úr sömu flokkum enduðu á þingi.
Er búið að ganga úr skugga um að öll gögn séu til. Eru allir kjörseðlar og annað varðveittir á öryggum stað. Minnugir þess sem gerðist í Borgarnesi á sínum tíma, að atkvæði þar voru þar ekki geymd samkvæmt reglum?
„Það er ekkert sem bendir til annars. Það var farið í bæði breytingar á kosningalögum og fyrirkomulagi kosninga í kjölfar síðustu alþingiskosninga (2021) með það að markmiði að bæta þar úr,“ segir Dagur.

Það breytir því ekki að kjör þingmanna er ekki endanlegt fyrr en Alþingi hefur að undangenginni skoðun undirbúningsnefndarinar staðfest það. Kolbrún Baldursdóttir sem náði kjöri sem jöfnunarþingmaður Flokks fólksins greinir þess vegna frá því á Vísi í dag að hún hafi aðeins beðist lausnar frá embætti borgarfulltrúa tímabundið því hún vilji bíða eftir endanlegri niðurstöðu undirbúningsnefndar um úrslit nýliðinna alþingiskosninga.
„Við lærðum það nú eftir síðustu þingkosningar (2021) að það þyrfti kannski lítið að breytast til að sú hringekja færi af stað. En ég ætla ekki að fullyrða um að það séu einhverjar líkur á því að þessu sinni. En jöfnunarþingmenn eru í aðeins annarri stöðu heldur en þeir sem eru kjördæmakjörnir,“ segir formaður undirbúningsnefndar.
Eitt af verkefnum nefndarinnar væri þó að leysa úr kærum sem bárust á grundvelli umsagnar landskjörstórnar. Ein kæran lúti að endurtalningu í Suðvesturkjördæmi, eða Kraganum svo kallaða.
„Og við erum ekki komin að þeirri kæru. Þannig að ég held að það sé ekki rétt að tjá sig um kæruefnið eða möguleikana á því fyrr en nefndin hefur lokið yfirferð yfir það,“ segir Dagur B. Eggertsson.
Áætlað er að Alþingi komi saman hinn 4. febrúar en verður að koma innan tíu vikna frá kosningum. Sá tími verður liðinn hinn 8. febrúar.