Innlent

Skjala­fals vegna inn- og út­flutnings katta kært til lög­reglu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Í báðum tilvikum voru skjöl fölsuð til að koma köttunum inn og út úr landi.
Í báðum tilvikum voru skjöl fölsuð til að koma köttunum inn og út úr landi. Getty/Chris Winsor

Tvö mál komu upp í árslok þar sem einstaklingar urðu uppvísir að því að falsa pappíra til að annars vegar flytja inn kött og hins vegar flytja þrjá ketti úr landi.

Frá þessu er greint á vefsíðu Matvælastofnunar þar sem fjallað er um stjórnvaldsákvarðanir á sviði eftirlits með dýravelferð, matvælaframleiðslu og inn- og útfluningi gæludýra í nóvember og desember.

Aðeins er um yfirlit að ræða og engar ítarupplýsingar veittar um málin.

Einstaklingur á höfuðborgarsvæðinu var kærður til lögreglu eftir að hann lagði fram falsað heilbrigðis- og upprunavottorð frá erlendum yfirvöldum við tilraun til innflutnings á ketti. Umsókninni var synjað.

Þá var einstaklingur á höfuðborgarsvæðinu kærður eftir að í ljós kom að hann hafði falsað nafn starfsmanns MAST og sjálfstætt starfandi dýralæknis á útflutningsskjölum vegna þriggja katta. Innflutningnum var hafnað í móttökuríkinu og kettirnir fluttir aftur til Íslands, þar sem þeir voru settir í einangrun.

Á vefsíðunni er einnig fjallað mál hundaeiganda sem sótti um leyfi til að flytja hund sinn til Íslands en gerðist brotlegur með því að flytja hann í farþegarými flugvélarinnar, í stað farangursrýmis. Var brotið kært til lögreglu.

Annar hundaeigandi var sviptur umráðum dýrsins þar sem hann gat ekki haldið hundinn sjálfur og heimilisaðstæður voru metnar óhæfar til að halda dýr.

Tveir voru sviptir mjólkursöluleyfi og annar þeirra vörslu nautgripa sinna og þá var bóndi á Vesturlandi sviptur vörslu á sauðfé. Hélt MAST utan um smölun af fjalli og kom fénu í sláturhús.

Stjórnvaldssekt var lögð á fiskeldisfyrirtæki á Suðurlandi, sem vanrækti að svipta eldisfisk meðvitund fyrir blóðgun. Sektin nam 300 þúsund krónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×