Erlent

Tala látinna hækkar í LA og veður­spáin er ó­hag­stæð

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Framan af gekk erfiðlega að ná tökum á eldunum og fjöldi hefur misst heimili sín.
Framan af gekk erfiðlega að ná tökum á eldunum og fjöldi hefur misst heimili sín. Getty/Anadolu/Tayfun Coskun

Tala látinna í eldunum í Los Angeles borg í Bandaríkjunum er nú kominn í 24 og er sextán hið minnsta saknað.

Eldarnir brenna nú aðallega á þremur stöðum og þykir slökkvistarf hafa gengið nokkuð vel um helgina, miðað við stærð verkefnisins.

Þó bætast nýir eldar einnig við og í gær tókst slökkviliði að koma í veg fyrir að eldur færi í rannsóknarmiðstöð NASA, geimferðastofnunar Bandaríkjanna, þar sem unnið er að þróun á þotuhreyflum fyrir geimferðir. Um háleynilegt verkefni er að ræða sem staðsett er í miðju skóglendi og þykir kraftaverki líkast að tekist hafi að bjarga byggingunum á svæðinu, svo mikill var eldurinn.

Slökkviliðsmenn úr nálægum ríkjum hafa mætt til að aðstoða og einnig frá Mexíkó og Kanada. Vindinn hefur líka lægt nokkuð síðustu daga sem auðveldar slökkviliðsmönnum vinnu sína. Nú vara veðurfræðingar hinsvegar við því að vindurinn fari vaxandi á ný og að það verði vindasamt vel fram í miðja vikuna.

Hin látnu hafa langflest dáið í tveimur stærstu eldunum. Sextán hafa fundist þar sem Eaton eldurinn brennur og átta á Palisades svæðinu. Þrátt fyrir þessa slæmu veðurspá næstu daga hefur verið ákveðið að skólahald í borginni hefjist að nýju í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×