Innlent

Eyjólfur tekur fyrstu skóflu­stunguna að borgarlínu á morgun

Árni Sæberg skrifar
Eyjólfur tekur fyrstu skóflustunguna að Fossvogsbrú á morgun. Brúin verðu göngu- og hjólabrú ásamt því að borgarlína muni ganga um hana.
Eyjólfur tekur fyrstu skóflustunguna að Fossvogsbrú á morgun. Brúin verðu göngu- og hjólabrú ásamt því að borgarlína muni ganga um hana. Vísir

Eyjólfur Ármannsson, nýr samgönguráðherra, mun taka fyrstu skóflustunguna að byggingu Fossvogsbrúar. Brúin er fyrsta stóra framkvæmdin í Borgarlínuverkefninu.

Í tilkynningu frá Betri samgöngum segir að framkvæmdir við landfyllingar og sjóvarnir tengdum byggingu Fossvogsbrúar hefjist af fullum krafti á Kársnesi í Kópavogi á morgun. Verksamningur milli Vegagerðarinnar og verkakafyrirtækisins Gröfu og grjóts hafi verið undirritaður í síðustu viku í kjölfar útboðs í nóvember 2024.

Fossvogsbrúin sé hluti af Samgöngusáttmálanum og fyrsta stóra framkvæmdin í borgarlínuverkefninu. Brúin tengi saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavík með afgerandi hætti. Áætluð verklok séu 1. nóvember 2026 fyrir þennan hluta verksins en gert sé ráð fyrir að Fossvogsbrú verði tilbúin um mitt ár 2028.

Nýr samgönguráðherra, Eyjólfur Ármannsson, taki fyrstu skóflustunguna klukkan 12:30 á morgun, ásamt borgarstjóra Reykjavíkur, bæjarstjóra Kópavogs, forstjóra Vegagerðarinnar og framkvæmdastjóra Betri samgangna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×