Handbolti

Strákarnir hans Arons töpuðu aftur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þrátt fyrir tvö töp á HM til þessa þá fá Aron Kristjánsson og lærisveinar hans hreinan úrslitaleik um sæti í milliriðli í lokaumferðinni.
Þrátt fyrir tvö töp á HM til þessa þá fá Aron Kristjánsson og lærisveinar hans hreinan úrslitaleik um sæti í milliriðli í lokaumferðinni. Getty/Luka Stanzl

Egyptaland, Portúgal og Holland fögnuðu sigri í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta í dag en Tékkar og Pólverjar gerðu jafntefli í fjórða leiknum sem er lokið í dag.

Barein hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á mótinu en fær eitt tækifæri í viðbót að tryggja sig inn í milliriðla.

Barein tapaði með ellefu marka mun á móti Egyptum í dag, 35-24 en hafði áður tapað með fjórtán mörkum á móti Króatíu í fyrsta leiknum. Egyptar voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11.

Aron Kristjánsson þjálfar lið Barein sem hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum í aðdraganda mótsins. Hann talaði um það eftir Króatíuleikinn að stefnan væri að bæta liðið í leik eitt og tvö til að undirbúa sig sem best fyrir úrslitaleik um sæti í milliriðli á móti Argentínu.

Barein fær þennan leik á móti Argentínu í lokaumferðinni og sigur ætti að skila þeim áfram upp úr riðlinum.

Brasilíumenn byrjuðu mótið vel og unnu Norðmenn í fyrsta leik. Þeir byrjuðu líka vel á móti Portúgal í dag og voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12. Portúgalar sýndu styrk sinn í seinni hálfleik sem þeir unnu 18-11 og þar með leikinn með fjögurra marka mun, 30-26 Portúgal hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í mótinu.

Það var mikil spenna í leik Tékka og Pólverja. Tékkar, sem eru á sínu fyrsta HM frá 2015, voru yfir nær allan leikinn en þeir gerðu jafntefli í fyrsta leiknum sínum.

Tékkar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 12-9, en Pólverjar unnu sig inn í leikinn og náðu að jafna um miðjan seinni hálfleik. Lokamínúturnar voru síðan mjög spennandi en leikurinn endaði með 19-19 jafntefli.

Marcel Jastrzebski átti frábæra innkomu í mark Pólverjar og það var næstum því búið að skila sigri. Pólverjar fengu lokasóknina í leiknum en tókst ekki að nýta hana. Tékkar hentu frá sér sigri en fögnuðu stigi á endanum.

Tékkar hafa gert jafntefli í tveimur fyrstu leikjum sínum en þetta var fyrsta stig Pólverja.

Hollendingar unnu xx marka sigur á Norður-Makedóníu, xx-xx, en hollenska liðið hefur unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu og er komið áfram í milliriðil. Hollendingar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 18-15. Þeir hafa skorað xx mörk í tveimur fyrstu leikjum mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×