Enski boltinn

Táningur hand­tekinn vegna um­mæla í garð Ha­vertz og eigin­konu hans

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kai Havertz í leiknum gegn Manchester United.
Kai Havertz í leiknum gegn Manchester United. EPA-EFE/TOLGA AKMEN

Sautján ára gamall táningur hefur verið handtekinn vegna þeirra viðbjóðslegu ummæla sem látin voru falla í garð Kai Havertz og eiginkonu hans eftir að leikmaðurinn brenndi af vítaspyrnu í tapi Arsenal gegn Manchester United í ensku bikarkeppninni í fótbolta.

Rauðu djöflarnir fóru áfram í ensku bikarkeppninni á dögum á kostnað Arsenal. Eftir að Martin Ödegaard brenndi af vítaspyrnu sem Havertz fiskaði þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um hvort liðið færi áfram en staðan að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu var jöfn 1-1.

Í vítaspyrnukeppninni brenndi Havertz af þegar Altay Bayındır varði spyrnu hans alveg út við stöng. David Raya, markverði Arsenal, tókst ekki að verja neina spyrnu United-manna og Man Utd fór áfram í bikarnum að þessu sinni.

Fundu sumir sig knúna til að senda Havertz - sem og óléttri eiginkonu hans - viðbjóðsleg skilaboð að leik loknum.

„Ég vona að þú lendir í fósturláti,“ stóð í einum skilaboðunum sem Sophia, eiginkona Havertz fékk send á Instagram. 

„Ég ætla að koma heim til þín og slátra barninu þínu. Ég er ekki að grínast, bíddu bara,“ stóð í öðrum.

Í skjáskotum sem Sophia sjálf birti á Instagram má sjá að um fleiri en einn sökudólg er að ræða. Nú greinir breska ríkisútvarpið, BBC, frá því að einn aðili hafi verið handtekinn vegna málsins. Um er að ræða 17 ára gamlan pilt frá borginni St Albans á Englandi. Hann var látinn laus gegn tryggingu.

Sophia biðlar til fólks að gæta betur að því hvernig það hegðar sér, og skrifaði með skilaboðunum sem hún birti á Instagram:

„Mér finnst það algjörlega með ólíkindum að einhver geti skrifað svona lagað. Vonandi skammast þú þín innilega. Ég veit ekki einu sinni hvað ég get sagt en vinsamlegat sýnið meiri nærgætni. Við erum betri en þetta.“

Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, tók í sama streng. Segir hann skilaboðin sem leikmann fái eftir leiki ólíðandi og það þurfi að útrýma slíkri hegðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×