Viggó skoraði níu mörk og var markahæstur Íslendinga í sigrinum á Egyptum, 24-27, í milliriðli 4 á HM í gær. Hann er markahæsti leikmaður Íslands á mótinu með 23 mörk.
Viggó átti frábæran kafla í seinni hálfleiknum gegn Egyptaland og skoraði þá fjögur mörk í röð.
„Hann er svo verðmætur. Eins og þegar hann stelur boltanum í hraðaupphlaupinu. Við vorum tveimur færri að hlaupa til baka og það var einhver meðbyr með þeim. Þá stelur hann boltanum, skorar og drepur þá aðeins. Svo er allt að leysast upp og hann tekur geðveikt gólfskot eða þessa frábæru snúningsfintu,“ sagði Bjarni í Besta sætinu.
„Hann kemur svo upp á ótrúlega góðum augnablikum. Ef við hugsum til baka erum við allir alltaf búnir að tala um hvað hann er góður með landsliðinu. Hann kemur alltaf með góðar innkomur. Þegar þú ert í landsliði ertu ekkert endilega að spila það hlutverk sem þú ert vanur. Hann hefur þurft að vera í einhverju allt öðru hlutverki en hann á að venjast. En núna er hann kominn í sitt hlutverk. Hann er ógeðslega góður á boltann, gerir ótrúlega vel í sínu og alltaf þegar við þurfum á að halda er hann tilbúinn.“
Líður betur að vera númer eitt
Síðustu ár hefur Ómar Ingi Magnússon verið á undan Viggó í goggunarröðinni í landsliðinu. En vegna meiðsla Selfyssingsins en Seltirningurinn nú orðinn fyrsti kostur í stöðu hægri skyttu. Stefán Árni Pálsson spurði Einar hvort Viggó liði ef til vill betur að vera ekki með Ómar.
„Þetta er mjög skrítin spurning. Ég held að honum líði betur, að vera númer eitt, að fá það traust og hafa traust frá þjálfaranum. Hann er líka að taka víti sem er líka traust. Svo má ekki gleyma því að hann er geggjaður í vörn. Hann er sturlaður í vörn,“ sagði Einar.
„Hann er að mæta mjög öflugum leikmönnum trekk í trekk og hann tapar varla stöðu, ógeðslega góður að vinna sig út fyrir hindranir og með svo marga þætti sem eru dýrmætir í varnarleik í handbolta. Viggó er leikmaðurinn sem sér einn, tvo, þrjá leiki fram í tímann. Hann er líka þannig í sókn.“
Hentar landsliðinu betur
Einar segir að Viggó, og hans leikstíll, henti íslenska landsliðinu vel, og jafnvel betur en Ómar Ingi.
„Viggó verður aldrei valinn besti leikmaður Bundesligunnar. Ég ætla að fullyrða það. En hann hentar að mörgu leyti betur inn í þann bolta sem við spilum,“ sagði Einar.
„Snorri er að finna línurnar sínar. Ég held að Ómar gæti hæglega verið hluti af þessari línu. Auðvitað líður Viggó frábærlega að vera númer eitt og með traustið; þannig líður öllum best. En mér finnst hann alltaf góður með landsliðinu,“ sagði Bjarni.
Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan sem og hér fyrir neðan. Þáttinn má finna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.