Innlent

Þrír hand­teknir grunaðir um stór­fellda líkams­árás

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Meintur árásarmaður var farinn þegar lögreglu bar að garði. Hann fannst þó stuttu síðar.
Meintur árásarmaður var farinn þegar lögreglu bar að garði. Hann fannst þó stuttu síðar. Vísir/Vilhelm

Lögregla hefur handtekið þrjá, vegna gruns um stórfelldrar líkamsárásar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar fyrir verkefni gærvköldsins og næturinnar.

Þar segir að lögreglan á lögreglustöð númer eitt, sem sinnir austur-, mið- og vesturbæ Reykjavíkur, auk Seltjarnarness, hafi verið kölluð til vegna slagsmála þriggja. 

„Er lögregla kom á vettvang var meintur árásaraðili farinn. Hann fannst stuttu seinna en sá með áverka eftir slagsmálin. Árásarþolar fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar og allir þrír aðilarnir handteknir vegna málsins, grunaðir um stórfellda líkamsárás. Málið í rannsókn,“ segir í skeyti lögreglu.

Sex gistu fangageymslur í morgun samkvæmt dagbókarfærslu lögreglu, og 43 mál skráð í málakerfi lögreglu frá klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×