Fótbolti

Dag­skráin í dag: Gummi með á­tján bolta á lofti á lokakvöldi

Sindri Sverrisson skrifar
Mohamed Salah og félagar hafa verið með besta liðið hingað til í Meistaradeild Evrópu í vetur.
Mohamed Salah og félagar hafa verið með besta liðið hingað til í Meistaradeild Evrópu í vetur. Getty

Það verður heldur betur hamagangur á Stöð 2 Sport 2 í kvöld þegar lokaumferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta fer fram. Átján leikir verða spilaðir á sama tíma.

Gummi Ben og félagar hafa farið á kostum í Meistaradeildarmessunni í vetur en þurfa nú að hafa augun á enn fleiri völlum en áður, því þeir fylgjast með öllu því helsta sem gerist í leikjunum átján í kvöld.

Eftir leikina liggur endanlega fyrir hvaða átta lið komast beint í 16-liða úrslit, hvaða lið enda í 9.-24. sæti og fara í umspil um sæti í 16-liða úrslitum og hvaða lið enda í 25.-36. sæti og falla úr keppni.

Manchester City er eitt þeirra liða sem gæti fallið úr keppni í kvöld, á meðan að Liverpool keppir um efsta sæti deildakeppninnar og Arsenal vonast til að tryggja sér endanlega sæti í hópi átta efstu.

Fleira er á sportrásunum en þar ber helst að nefna Bónus-deild kvenna þar sem tveir leikir eru í beinni útsendingu og málin svo gerð upp í Bónus Körfuboltakvöldi.

Stöð 2 Sport

19.00 Haukar - Grindavík (Bónus-deild kvenna)

21.00 Bónus Körfuboltakvöld kvenna

Stöð 2 Sport 2

19.30 Meistaradeildarmessan

22.00 Meistaradeildarmörkin

Stöð 2 Sport 3

19.50 Man. City - Club Brugge

Stöð 2 Sport 4

19.50 Girona - Arsenal

Stöð 2 Sport 5

19.50 Stuttgart - PSG

Stöð 2 Sport 6

19.50 Aston Villa - Celtic

Vodafone Sport

19.50 PSV - Liverpool

00.05 Panthers - Kings (NHL)

Stöð 2 BD

19.10 Hamar/Þór - Njarðvík (Bónus-deild kvenna)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×