Íslenski boltinn

Páll sækist ekki eftir endur­kjöri hjá KR

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Páll Kristjánsson lætur af formennsku í knattspyrnudeild KR á næsta aðalfundi.
Páll Kristjánsson lætur af formennsku í knattspyrnudeild KR á næsta aðalfundi. vísir/baldur

Eftir að hafa verið formaður knattspyrnudeildar KR síðustu fimm ár hefur Páll Kristjánsson ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri á komandi aðalfundi.

Í færslu á Facebook síðu KR segir Páll mikilvægt að þekkja sinn vitjunartíma og hann telji tíma til kominn að hleypa nýjum formanni að.

Samkvæmt heimildum íþróttadeildar er Magnús Orri Schram líklegastur til að taka við formennsku í knattspyrnudeild KR.

Í færslunni fer Páll meðal annars yfir aðstöðumál KR og segir að þann 16. febrúar, á 126 ára afmæli félagsins, verði tekin ný skóflustunga að nýju knatthúsi og húsbyggingu sem muni sameina félagsstarf KR. Frá og með næsta tímabili mun KR leika á nýjum gervigrasvelli.

Karlalið KR endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili en kvennaliðið vann sér sæti í Lengjudeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×