Innlent

Til­raun til stunguárásar í Hafnar­firði

Lovísa Arnardóttir skrifar
Karlmaður var handtekinn í kjölfar þess að hann reyndi að stinga annan mann. Myndin er úr safni.
Karlmaður var handtekinn í kjölfar þess að hann reyndi að stinga annan mann. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Karlmaður var handtekinn í Hafnarfirði í dag á milli 13 og 14 eftir að hann reyndi að stinga annan karlmann í bíl eftir að ökumaðurinn neitaði að gefa honum far. 

Samkvæmt upplýsingum frá Elínu Agnesi Kristínardóttur í miðlægri deild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sakaði manninn ekki sem var inni í bílnum.

Hún segir málið til rannsóknar hjá almennri deild en ekki miðlægri deild.

Í dagbók lögreglunnar kemur fram að ökumaðurinn hafi verið að leggja bílnum sínum í Hafnarfirði þegar annar maður settist inn í bílinn og bað hann að skutla sér. Ökumaðurinn neitaði að verða við því en þá dró hinn maðurinn upp hníf og hótaði að stinga ökumanninn. Ökumaðurinn kom sér þá undan. Fram kemur í dagbók lögreglunnar að lögreglan hafi vopnast og handtekið manninn.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að lögreglan sendi frá sér tilkynningu með upplýsingum um málið í dagbók lögreglunnar. Uppfærð 22.30 þann 31.1.2025. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×