Celtic hélt sér á lífi með marki í lokin á móti Bayern

Harry Kane fagnar marki sínu Bayern München á móti Celtic í Meistaradeildinni í kvöld.
Harry Kane fagnar marki sínu Bayern München á móti Celtic í Meistaradeildinni í kvöld. Getty/ Crystal Pix

Bayern München vann 2-1 útisigur á Celtic í kvöld í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Bayern komst í 2-0 í leiknum og voru því í frábærum málum eftir mörk frá Michael Olise á 45. mínútu og Harry Kane á 49. mínútu.

Daizen Maeda minnkaði muninn í 2-1 á 79. mínútu með skalla eftir sendingu frá Hyun-Jun Yang. Markið heldur Celtic á lífi í einvíginu þótt að verkefnið verði mjög erfitt í Þýskalandi.

Vangelis Pavlidis tryggði Benfica 1-0 útisigur á Mónakó en mark hans koma á 48. mínútu. Mónakó missti Moatasem Al Musrati af velli með rautt spjald á 52. mínútu en fékk ekki á sig fleiri mörk.

PSV Eindhoven rak þjálfarann tveimur dögum fyrir leik en fagnaði 1-0 sigur á ítalska liðinu AC Milan. Igor Paixao skoraði eina mark leiksins strax á þriðju mínútu.

Gustaf Nilsson tryggði Club Brugge 2-1 sigur á Atalanta með marki úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbótatíma.

Ferrán Jutglà kom Club Brugge í 1-0 á 15. mínútu en Mario Pasalic jafnaði metin fyrir Atalanta á 41. mínútu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira