Skoðun

Orð skulu standa

Jón Pétur Zimsen skrifar

Það er freistandi fyrir stjórnmálamenn, sérstaklega í aðdraganda kosninga, að lofa hinu og þessu eða segjast ætla að gera flest fyrir marga og þannig sópa að sér atkvæðum hjá vongóðum kjósendum. Þessi hegðun getur þó skaðað mikið, bæði fyrir þann sem skapar væntingar og þá sem verða fyrir vonbrigðum. Ein okkar mikilvægasta stétt, kennarar, er því miður á leið í verkfall, enn á ný, því óralangt virðist vera á milli deiluaðila.

Undirritaður telur rétt að rifja upp það sem oddvitar ríkisstjórnarinnar, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, höfðu að segja um stöðuna þegar þær gátu farið með söluræðurnar fyrir kosningar.

„Samfylkingin hefur lýst því yfir víða og ég get sagt það bara hér að við styðjum kennara heilshugar í sinni kjarabaráttu,“ sagði Kristrún Frostadóttir, nú hæstvirtur forsætisráðherra í kappræðum RÚV í nóvember. Önnur verðandi valkyrja, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, nú hæstvirtur utanríkisráðherra, sparaði heldur ekki stóru orðin á sama vettvangi:

„Ég hvet næstu ríkisstjórn til að taka þetta verkefni föstum tökum og nýta tímann fram til 31. janúar til að það verði það umhverfi fyrir kennara að við fáum áfram að þroskast og dafna, bæði fyrir börnin og aðra.“ sagði Þorgerður Katrín sem endaði svo í næstu ríkisstjórn. Þetta lét Þorgerður hafa eftir sér meðan hún horfði djúpt í myndavélina og vildi sérstaklega ávarpa kennara, móðurlegri röddu.

Hún sagði kjarasamninga koma til ára sinna og málum hefði verið ýtt á undan sér, það þyrfti að taka betur utan um kennara. Skilaboðin voru skýr. Ef hún kæmist í ríkisstjórn myndi hún taka á málunum enda Viðreisn barist fyrir bættum kjörum kvennastétta, utan ríkisstjórnar. Ábyrgðarlaus.

Líklega hafa einhverjar kampavínsflöskur verið opnaðar á kennaraheimilum þegar Valkyrjurnar komust til valda. Verkstjórnin mikla sem - stæði við það sem hún segði - var komin við stjórn. Ljóst er að lítil innistæða var og er fyrir fagurgali oddvitanna tveggja fyrir kosningar. Menntamál eru eitthvað sem þær raða í neðstu skúffu. Þingmálaskráin í þessum mikilvæga málaflokki er svo þunn að í gegnum hana sést, ekki er mikill bragur á því.

Fyrir utan þá dapurlegu staðreynd að 40% íslenskra barna eru ekki með grunnfærni í lesskilningi þá hefur börnum sjaldan liðið jafn illa og verið jafn einmana. Líðan barna hefur verið verulegt áhyggjumál eftir heimsfaraldur þegar að þau einangruðust heima því ekki var hægt að fara í skólann. Núna, 17. febrúar, eru verkföll kennara boðuð eftir fjóra daga því svo að ekki verður í boði fyrir hundruð barna að mæta í skólann.

Það er ekki hlutverk ráðherra að grípa inn í yfirstandandi kjaraviðræður, enda eiga þeir ekki sæti við borðið. Hlutverk ráðherra er aftur á móti tvímælalaust það að sýna á spilin, nema þá að ríkisstjórnin hafi ekki í hyggju að grípa til aðgerða í málefnum barna. Ég efast um að kennarar og aðrir kjósendur hafi gleymt gylliboðunum sem látin voru falla fyrir kosningar og haft til þeirra raunhæfar og sjálfsagðar væntingar. Fæstir brenna sig tvisvar á sama loganum.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri.




Skoðun

Skoðun

Reykja­vík er höfuð­borg okkar allra

Ásthildur Sturludóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,Gerður Björk Sveinsdóttir,Íris Róbertsdóttir,Jóna Árný Þórðardóttir,Katrín Sigurjónsdóttir,Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Sigurjón Andrésson skrifar

Sjá meira


×