Skoðun

Ný krydd í skuldasúpuna

Helgi Áss Grétarsson skrifar

Á dagskrá fundar borgarstjórnar í dag eru mörg mál sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram á yfirstandandi kjörtímabili. Málaskráin varpar meðal annars ljósi á tillögur sem fulltrúar flokksins hafa hingað til lagt fram svo að hægt sé að ná tökum á rekstri Reykjavíkurborgar. Bæði er um að ræða tillögur að hagræðingu í rekstri og sölu eigna. Öllum þessum málum verður án efa frestað þar eð fæðingarhríðir nýs meirihluta eru í gangi, flokka lengst til vinstri, frá Sósíalistaflokki Íslands til Flokks fólksins.

Flokkur fólksins og fjármál borgarinnar

Hingað til á kjörtímabilinu hefur verið mikil málefnaleg samstaða milli Flokks fólksins og Sjálfstæðisflokksins um fjármál borgarinnar. Sérstaklega hafa flokkarnir verið sammála um nauðsyn þess að leggja niður Stafrænt ráð og endurskipuleggja starfsemi Þjónustu- og nýsköpunarsviðs borgarinnar. Fráfarandi borgarfulltrúi Flokks fólksins og núverandi fyrsti varaborgarfulltrúi flokksins hafa verið óþreytandi að benda á há útgjöld við margvíslega tilraunastarfsemi við framkvæmd stafrænnar umbreytingar Reykjavíkurborgar. Árangurinn af tilraunastarfseminni hefur verið umdeildur og á fundum borgarstjórnar hafa reglulega átt sér stað hörð orðaskipti um þessi tæknimál borgarinnar á milli fulltrúa Flokks fólksins og pírata.

En fljótt skipast veður í lofti og er fulltrúum Flokks fólksins í borgarstjórn óskað velgengni í væntanlegu meirihlutasamstarfi, meðal annars í því að taka til í tæknimálunum.

Hver er skuldastaðan?

Fyrir ófáa kjósendur getur umræða um fjármál sveitarfélaga verið álíka áhugaverð eins og að sjá málningu þorna. Þess vegna er auðvelt fyrir sleipa þátttakendur í stjórnmálum að dreifa villandi upplýsingum um fjárhagsstöðu einstakra sveitarfélaga. Nýlegt dæmi um það er færsla prófessors í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands á samfélagsmiðlum. Viðkomandi prófessor er núverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur ásamt því að hafa starfað sem ráðherra í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og VG 2009-2013. Sem sagt, prófessorinn taldi í færslu sinni upplýsandi að spyrja gervigreindarforritið chatGTP um skuldastöðu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og var oddviti Samfylkingarinnar í borginni fljót til að dreifa færslu prófessorsins.

Þessi sérstaka færsla prófessorsins, sem hefur alla burði sjálfur til að rýna í fjárhagsstöðu sveitarfélaga, sýnir að það getur verið flókið að ræða um fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar á málefnalegum forsendum.

Hins vegar, ef skuldastaða Reykjavíkurborgar sé sérstaklega tekin til skoðunar, er óumdeilt að langtímaskuldir A-hluta borgarinnar (sá hluti sem er rekinn aðallega fyrir skattfé) eru alltof háar og eru til þess fallnar að valda rekstrinum búsifjum í formi hárra afborgana af lánum og greiðslu vaxta. Séu slíkar skuldir reiknaðar, sem hlutfall af eigin fé, þá voru þær 164,8% af eigin fé hinn 30. september 2024 en í árslok 2014 var sambærilegt hlutfall 43,1%. Þessi þróun, ein og sér, gefur til kynna hversu mikil óráðsía undanfarinn áratug hefur verið í rekstri A-hluta Reykjavíkurborgar undir forystu Samfylkingarinnar.

Veitir hrein vinstri-stjórn í Reykjavík vonir um betri stjórn fjármála?

Engin ástæða er til að ætla að rekstur A-hluta borgarinnar taki jákvæðum breytingum undir stjórn væntanlegs meirihluta í borgarstjórn. Þvert á móti má reikna með að það halli enn frekar undir fæti enda hefur það jafnan verið reynslan af hreinum vinstri-stjórnum. Helsta framlag væntanlegs meirihluti verður sjálfsagt í því fólgið að bæta og fjölga kryddum í skuldasúpu Reykjavíkurborgar.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Reykja­vík er höfuð­borg okkar allra

Ásthildur Sturludóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,Gerður Björk Sveinsdóttir,Íris Róbertsdóttir,Jóna Árný Þórðardóttir,Katrín Sigurjónsdóttir,Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Sigurjón Andrésson skrifar

Sjá meira


×