Skoðun

Píratar til for­ystu

Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Framsóknarflokkurinn hefur lengi verið þekktur fyrir að sveiflast milli pólitískra stefna eins og vindhani í íslensku roki. Nýjasta uppátæki þeirra, að slíta meirihlutasamstarfinu í Reykjavík, er enn eitt dæmið um óstöðugleika og stefnuleysi sem hefur einkennt flokkinn í gegnum tíðina.

Þann 8. febrúar 2025 ákvað Einar Þorsteinsson, borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, að slíta samstarfinu við Samfylkinguna, Pírata og Viðreisn. Ástæðan? Ágreiningur um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Það er næstum því fyndið að hugsa til þess að flugvöllurinn, sem hefur staðið eins og fasti í borgarlandslaginu, sé nú orðinn táknmynd fyrir flokk sem virðist ekki geta ákveðið sig um neitt nema að vera ósammála.

Þessi ákvörðun kom eins og þruma úr heiðskíru lofti fyrir samstarfsflokkana.

Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, lýsti því yfir að "konurnar verða að koma og taka til þegar karlarnir eru með vesen og skella öllu í uppnám." Það er kaldhæðnislegt að sjá hvernig Framsóknarflokkurinn, sem einu sinni var talinn miðjumoðsflokkur, hefur nú þróast í pólitískan klaufabárð sem þarf stöðugt á hjálp að halda til að hreinsa upp eftir sig.

Píratar hafa setið í borgarstjórn í tæp ellefu ár og hafa á þeim tíma tekið þátt í þremur mismunandi meirihlutum. Dóra Björt, oddviti Pírata, hefur setið í borgarstjórn í sjö ár og tekið virkan þátt í stjórn borgarinnar, fjárhagsáætlanagerð og skipulagsbreytingum, og verið óhrædd við að koma fram fyrir hönd meirihlutans í erfiðum málum og taka ábyrgð af auðmýkt og festu.

Píratar eru öflugir umbótasinnar sem leitt hafa innleiðingu á auknu íbúalýðræði, skaðaminnkandi nálgun í vímuefnamálum, auknu gagnsæi í stjórnsýslu, og eflt stafræna innviði til að bæta þjónustu við íbúa - og í senn gera hana skilvirkari og ódýrari fyrir borgina.

Píratar ganga ekki frá borðinu þótt á móti blási. Þau eru tilbúin að axla ábyrgð, miðla málum, og sjá til þess að borgarbúar fái þá þjónustu, það gagnsæi og þá skýru framtíðarsýn sem þau eiga skilið.

Píratar hafa verið góður samstarfsflokkur, sveigjanleg þar sem það er nauðsynlegt, en staðföst í sínum kjarnaáherslum. Af þeim oddvitum sem nú eru í viðræðum hefur enginn verið jafn lengi oddviti í meirihluta en Dóra Björt. Hún hefur góða reynslu af flóknu samstarfi og að finna málamiðlanir milli ólíkra sjónarmiða. Það er nú einu sinni tilgangur Pírata að leiða saman ólík sjónarmið til þess að mynda farsæla lausn fyrir almenning.

Í nýju samstarfi er mikilvægt að þessi verðmæta reynsla sé vel nýtt og að því sögðu tel ég farsælast að Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, taki við embætti borgarstjóra út þetta kjörtímabil. Píratar leggja það svo í hendur kjósenda í næstu borgarstjórnarkosningum hvort að vel hafi tekist.

Höfundur er áhugamaður um samfélagsmál.




Skoðun

Skoðun

Reykja­vík er höfuð­borg okkar allra

Ásthildur Sturludóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,Gerður Björk Sveinsdóttir,Íris Róbertsdóttir,Jóna Árný Þórðardóttir,Katrín Sigurjónsdóttir,Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Sigurjón Andrésson skrifar

Sjá meira


×