Skoðun

Vandi Há­skóla Ís­land og lausnir – I – stéttar­fé­lög

Pétur Henry Petersen skrifar

Nú stendur yfir rektorskjör við HÍ. Átta frábærir einstaklingar gefa kost á sér til að stýra þessari lykilstofnun sem hefur mótað og mun móta íslenskt samfélag. Bæði menntar HÍ stóran hluta háskólamenntaðs fólks, en ekki síður eru þar stundaðar fjölbreyttar rannsóknir og mikilvæg fræðastörf. Við lifum í breytilegum heimi og fátt undirbýr okkur betur fyrir framtíðina en gæðaháskóli. Okkur - bæði sem einstaklinga og sem þjóð. Til þess þarf þó fyrst og fremst eðlilega fjármögnun – til að tryggja gæði starfsins og til að þjálfa upp nýjar kynslóðir. Rektorskandídatar skilja flestir að fjármögnun HÍ og rannsókna almennt er langt undir því sem eðlilegt getur talist. Þeir hafa því margir það á stefnuskrá sinni að auka þá fjármögnun og vonandi gengur það eftir. En, fleira þarf að lagfæra innan opinbera háskólakerfisins, sem sumt kostar pólitískt þor og jafnvel samstöðu meðal akademísks starfsfólks. Frumkvæðið að því þarf að koma víða að og verðandi rektor og stjórnvöld þurfa að tryggja að sérhagsmunagæsla og tregðulögmál komi ekki í veg fyrir nauðsynlegar breytingar. Tryggja þarf gæði og efla háskólanna.

Og nú verða sagðar fréttir. Akademískt starfsfólk opinberu háskólanna skiptist í fjögur stéttarfélög að mestu eftir landfræðilegri staðsetningu og/eða starfstitli. En um sama starf er að ræða og nánast samið um það sama í kjarasamningum! Munur er vissulega smávægilegur á starfskyldum lektora/dósenta og prófessora t.d. hlutfallslega í kennsluskyldu og stjórnunarskyldu en starfið er hið sama – kennsla og rannsóknir. Og lektorar verða að dósentum og dósentar oft að prófessorum með framgangi. Ástæðan fyrir því að akademískt starfsfólk er sundrað í mörgum félögum er fyrst og fremst söguleg og tími er kominn til að sameina allt akademískt starfsfólk opinberu háskólanna í eitt félag. Það verður sjálft að hafa frumkvæði að því – kannanir hafa sýnt að meirihluti þess vill sameinast. Það tryggir betri samningsstöðu og bætt kjör. Til lengri tíma tryggir það heilbrigða akademíu, grunnforsendu gæða í háskólastarfi. Það eru líka hagsmunir nemenda og annars starfsfólks skólanna (sem sumt deilir nú fleti með akademísku starfsfólki í stéttarfélögum).

Rektor HÍ getur ekki sameinað stéttarfélög, en getur hvatt og stutt akademískt starfsfólk í því að sameinast í eitt félag. Það verður mikið heillaskref fyrir allt starf á háskólastigi á Íslandi.

Höfundur er prófessor við HÍ.




Skoðun

Skoðun

Sam­úð

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar

Sjá meira


×