Janus Daði öflugur í súru tapi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. febrúar 2025 21:50 Janus Daði í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm Fjöldinn allur af íslenskum landsliðsmönnum kom við sögu í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Því miður fagnaði enginn sigri.
Janus Daði Smárason átti flottan leik og var markahæstur þegar Pick Szeged tapaði 32-29 gegn Nantes í Frakklandi. Janus Daði skoraði fimm mörk og gaf eina stoðsendingu. Enginn Íslendingur kom við sögu þegar Magdeburg vann eins marks sigur á Álaborg, 32-31. Pick Szeged er í 4. sæti með 12 stig á meðan Magdeburg er sæti neðar með 9 stig en leik til góða á Janus Daða og félaga. Danska félagið Fredericia mátti þola sex marka tap gegn París Saint-Germain frá Frakklandi, lokatölur 32-38. Einar Þorsteinn Ólafsson komst ekki á blað hjá Fredericia. Danska félagið er á botni A-riðils með einn sigur í 12 leikjum. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk þegar Kolstad gerði jafntefli við RK Zagreb í Króatíu, lokatölur 25-25. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði jafnframt eitt mark og gaf eina stoðsendingu í Íslendingaliði Kolstad. Sigvaldi Björn gaf sömuleiðis eina stoðsendingu. Sveinn Jóhannsson komst ekki á blað hjá gestunum. Kolstad er í 6. sæti, einnig með 9 stig líkt og Magdeburg, eftir að hafa leikið 12 leiki. Alls eru leiknir 14 leikir í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Að þeim loknum fara efstu tvö liðin í báðum riðlum beint í 8-liða úrslit á meðan liðin í 3. til 6. sæti fara í umspil um sæti í 8-liða úrslitum.
Handbolti Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Vignir Vatnar lagði Magnus Carlsen Sport Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Hörður undir feldinn Körfubolti Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Enski boltinn Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Enski boltinn „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Íslenski boltinn „Ekki fallegt að sjá hvernig farið er með Ancelotti“ Fótbolti Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Enski boltinn Fyrrum sparkari í NFL ætlar á þing vegna Trump Sport Fleiri fréttir Aron tryggði Veszprém jafntefli í Magdeburg Óvænt tap hjá Kolstad en Dana og Óðinn með allt á hreinu „Svona er úrslitakeppnin“ ÍR í undanúrslit eftir sigur með minnsta mun Elvar Örn frábær þegar Melsungen marði sigur Uppgjörið: Afturelding - Valur 31-23 | Mosfellingar jöfnuðu metin með stæl Anton og Jónas dæma stórleikinn í Ungverjalandi Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Sjá meira