Innlent

María Heimisdóttir skipuð land­læknir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
María Heimisdóttir er nýr landlæknir.
María Heimisdóttir er nýr landlæknir. Stöð 2/Sigurjón

María Heimisdóttir fyrrverandi forstjóri Sjúkratrygginga hefur verið skipuð í embætti landlæknis til næstu fimm ára. Hæfnisnefnd segir Maríu hafa afburða leiðtogahæfni og farsæla reynslu af stjórnun.

Greint er frá skipuninni á vef heilbrigðisráðuneytisins þar sem ferill Maríu er rakinn. Alma Möller lét af embætti landlæknis í aðdraganda Alþingiskosninganna 2024 og er nú heilbrigðisráðherra. Hún steig til hliðar við skipan landlæknis og var Jóhann Páll umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra settur landlæknir við skipunina.

María lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1990, MBA námi frá University of Connecticut 1997 og doktorsprófi í lýðheilsu frá University of Massachusetts árið 2002. María starfaði hjá Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 1999 til 2003 og á Landspítala árin 2003 til 2018, meðal annars sem yfirlæknir hagdeildar og framkvæmdastjóri fjármála, auk þess sem hún leiddi þróun rafrænnar sjúkraskrár um árabil. 

María var forstjóri Sjúkratrygginga Íslands frá 2018 til 2022 og árin 2023-2024 starfaði hún sem ráðgjafi stýrihóps Nýs Landspítala ohf. fyrir heilbrigðisráðuneytið. Frá því í ágúst á liðnu ári hefur hún verið yfirlæknir á upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur enn fremur sinnt kennslu og rannsóknum samhliða öðrum störfum og er varamaður í háskólaráði HÍ.

Það er mat lögskipaðrar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnanaað víðtæk háskólamenntun Maríu á fleiri en einu sviði nýtist mjög vel í starfi, auk sérfræðimenntunar í læknisfræði en sérgrein hennar er lýðheilsufræði. Þá sé hún reynslumikill og farsæll stjórnandi með langvarandi reynslu á sviði rekstrar og fjármála. 

Í umsögn nefndarinnar segir m.a. að að María hafi afburða leiðtogahæfni, farsæla reynslu af stjórnun og rekstri. 

Að neðan má sjá lista yfir þau sem staðið hafa vaktina í embætti landlæknis:

  • Bjarni Pálsson 1760–1779
  • Jón Sveinsson 1780–1803
  • Sveinn Pálsson 1803–1804 (settur)
  • Tómas Klog 1804–1815
  • Oddur Hjaltalín 1816–1820 (settur)
  • Jón Thorstenssen 1820–1855
  • Jón Hjaltalín 1855–1881
  • Jónas Jónassen 1881–1882 (settur)
  • Hans J. G. Schierbeck 1882–1895
  • Jónas Jónassen 1895–1906
  • Guðmundur Björnsson 1906–1931
  • Vilmundur Jónsson 1931–1959
  • Sigurður Sigurðsson 1960–1972
  • Ólafur Ólafsson 1972–1998
  • Sigurður Guðmundsson 1998–2006
  • Matthías Halldórsson 2006–2007 (settur)
  • Sigurður Guðmundsson 2007–2008
  • Matthías Halldórsson 2008–2009
  • Geir Gunnlaugsson 2010–2014
  • Birgir Jakobsson 2015–2018
  • Alma Möller 2018–2024
  • María Heimisdóttir 2025-



Fleiri fréttir

Sjá meira


×