Skoðun

Vandi Há­skóla Ís­lands og lausnir – III – Fjár­mögnun há­skóla

Pétur Henry Petersen skrifar

Nú stendur yfir rektorskjör við HÍ. Rektorskandídatar skilja að fjármögnun HÍ og rannsókna almennt er langt undir því sem eðlilegt getur talist og hamlar starfseminni. Hana þarf að bæta. En, fleira þarf að lagfæra innan opinbera háskólakerfisins er tengist grunnskipulagi þess.

Og nú verða sagðar fréttir. Fjármögnun opinberu háskólanna er eftir á og ákvörðuð af reiknilíkani stjórnvalda – sem byggir nú að mestu á talningum. Þetta er reyndar jafnvel flóknara því að innan HÍ er annað líkan sem dreifir fjármagni innan skólans. Samkvæmt reiknilíkani stjórnvalda fær háskólinn nú nær tvöfalt meira ef deild útskrifar tvöfalt fleiri nema. Og nær helmingi minna ef hún útskrifar helmingi færri. En fjöldi akademísks starfsfólks stendur í stað – og eru fastráðinn mjög sérhæfður starfskraftur, nánast samkvæmt skilgreiningu sem hvorki vex á trjám né hægt er að geyma í frysti til seinni tíma brúks. Hér er komin útskýringin á því að háskólar auglýsa á við bílaumboð á vorin (komdu í þægindi og glæsta framtíð). Þeir þurfa sem flesta nemendur til að dæmið gangi upp og þá þarf að útskrifa svo lokagreiðslur komi. Nemi sem hættir, kostar skóla milljónir í framtíðartekjum. Þessu fylgja augljósar hættur.

Slíkt kerfi horfir að mestu fram hjá því að það kostar næstum því jafn mikið að útskrifa einn nemenda og fimmtán – það er fastur kostnaður við að byggja upp háskóladeild! Það þarf að taka ákvörðun um hvaða nám á að bjóða upp á, fyrir hve marga um það bil og svo reikna út hvað það kostar. Þetta er svo einfalt – ekki verðlauna fyrir fjölda og kalla það árangur. Það væri besta nýtingin á fé til háskólanna og hvati til eðlilegrar starfsemi þeirra sem nú einkennist af skorti á kennslukrafti, hárri tíðni kulnunar einkenna og lágum launum. En, þýðir að við áttum okkur á hvað hlutir kosta í raun og við rifjum upp þá meginreglu að fyrir of lítið, fást jafnan minni gæði. Þeir sem tapa í núverandi kerfi eru ekki síst nemendur þ.e. framtíð þessa lands.

Næsti rektor HÍ verður að tryggja að stjórnvöld skilji hvernig gæðaháskólar virka og að einföld vanhugsuð reiknilíkön vinna gegn gæðum.

Höfundur er prófessor við HÍ.


Tengdar fréttir

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – II – ákvörðun launa

Nú stendur yfir rektorskjör við HÍ. Átta ágætlega frambærilegir einstaklingar gefa kost á sér til að stýra þessari stofnun sem er hreyfiafl í íslensku samfélagi. Fjármögnun háskólastigsins er undir viðmiðunarmörkum.Því þarf að breyta en fleira þarf að lagfæra innan opinbera háskólakerfisins. Þar mun verðandi rektor HÍ þurfa að beita sér.




Skoðun

Sjá meira


×