Íranir ætluðu ekki að húðstrýkja Ronaldo Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. mars 2025 11:30 Cristiano Ronaldo þarf ekki að óttast að fara til Íran. vísir/getty Íranska sendiráðið í Bretlandi segir það ekki vera rétt að til hafi staðið að veita Cristiano Ronaldo svipuhögg líkt og haldið var fram í fjölda fjölmiðla í gær.
Ronaldo var hvergi sjáanlegur í leik síns liðs, Al-Nassr, er það spilaði við íranska félagið Esteghlal í Meistaradeild Asíu. Hann var sagður vera meiddur en fjölmiðlar héldu því fram að hann hefði ekki þorað til Íran af ótta við verða húðstrýktur. Árið 2023 faðmaði og kyssti Ronaldo unga fatlaða konu í Íran. Hann gerði það til að þakka henni fyrir mynd sem hún málaði af honum með því að nota aðeins fæturna. Þessi vinsemd og góðsemi Ronaldo kom honum aftur á móti í mikil vandræði í Íran. Íranir líta á slíkt sem framhjáhald. Það er þegar þú sýnir kvenmanni, sem er ekki eiginkona þín, slíka ástúð og kærleiksþel, þá er eins og þú sért að halda framhjá konu þinni. Refsing fyrir slíkt gæti verið fangelsisvist og 99 svipuhögg. „Við mótmælum harkalega þeim fréttaflutningi að til hafi staðið að refsa alþjóðlegum íþróttamanni í Íran,“ sagði meðal annars í tilkynningu sendiráðsins. „Þvert á móti var fundi hans við Fatemeh Hamami hrósað af yfirvöldum og fólkinu í landinu.“
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Albert sagður á óskalista Everton og Inter Fótbolti Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Fótbolti Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers Körfubolti Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Fótbolti Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Lena Margrét til Svíþjóðar Handbolti Dagskráin í dag: Nágrannaslagur í Njarðvík, Jókerinn og Íslendingalið Fortuna Sport Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Fótbolti Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United „Hér er allt mögulegt“ Van Dijk fær 68 milljónir á viku Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Solanke skaut Tottenham í undanúrslit Chelsea í undanúrslit þrátt fyrir tap Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Albert og félagar í undanúrslit Slæmur skellur á móti nágrönnunum Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Sönderjyske vann Íslendingaslaginn Neymar fór grátandi af velli Sky Sports: Ancelotti hættir með Real Madrid eftir bikarúrslitaleikinn Sjá meira