Skoðun

Magnús Karl: Fyrsta flokks kennari, fyrsta flokks rektor

Þorri Geir Rúnarsson skrifar

„Maður einfaldlega skilur allt betur sem Magnús Karl kennir,“ sagði læknanemi þegar kennsla hans í lyfjafræði barst í tal.

Magnús Karl er einn þeirra kennara sem kenna efnið á mjög áhugaverðan og eftirminnilegan máta. Strax á fyrstu glæru spurði hann okkur nemendurna opinna spurninga um námsefnið, spurninga sem smám saman urðu hnitmiðaðri. Með samtalið að vopni höfðum við spannað efni fyrirlestursins áður en fyrstu glæru sleppti. Skilningur hans á námsefninu var slíkur að hann þurfti hvorki blað né glærur sér til stuðnings.

Magnús Karl hefur botnlausa ástríðu fyrir námsefninu sem smitast til nemenda hans. Með jákvæðni, trú og einstakri kennsluhæfni nær hann því besta úr öllum þeim sem þreytt hafa námskeið hjá honum. Það er því engin furða að hann hafi fengið bæði kennsluverðlaun frá félagi læknanema og síðar heiðursverðlaun félagsins.

Á þeirri löngu vegferð sem læknanám er höfum við nemendur kynnst góðum kennurum sem eru jafnframt stórir persónuleikar. Á slíku ferðalagi safnar maður þeim eiginleikum í sarpinn sem eru eftirsóknarverðir og reynir að tileinka sér þá. Þannig geta góðir kennarar haft mótandi áhrif á nemendur, langt út fyrir námskrá. Magnús Karl er einn þessara kennara, ekki aðeins vegna yfirburðaþekkingar og ástríðu fyrir námsefninu heldur einnig vegna þess hvernig hann nálgast nemendur af virðingu. Hann er eldhugi með einstaka samskiptahæfni og góða nærveru.

Með þekkingu, ástríðu og góðri samskiptahæfni er ekki nokkur vafi í mínum huga að Magnús Karl verður frábær rektor. Hann hefur skilning á gildi menntunar fyrir íslenskt samfélag og að Háskóli Íslands gegni þar veigamiklu hlutverki. Menntun er lykill að framþróun, velferð og þroskuðu menningarsamfélagi sem komandi kynslóðir geta notið sín í. Það má aldrei gleymast.

Magnús Karl hefur alla burði til þess að tala fyrir þessum gildum. Hann gerir sér jafnframt grein fyrir því að til þess að auka gæði menntunar þarf að skapa nemendum aðstæður til þess að geta helgað sig náminu sem best.

Af þessum ástæðum mun ég styðja Magnús Karl Magnússon heilshugar í komandi rektorskjöri.

Höfundur er 5. árs læknanemi við Háskóla Íslands




Skoðun

Sjá meira


×