Af hverju kílómetragjald? 5. mars 2025 21:02 Til umræðu á Alþingi er nýtt tekjuöflunarfyrirkomulag ríkisins til að standa undir vegakerfinu. Þetta er stórt skref í átt að sjálfbærri, sanngjarnri og gagnsærri skattlagningu ökutækja og umferðar á Íslandi. Nýja kerfið sem er í daglegu talið kallað kílómetragjald er mikilvægt svar við þeirri áskorun að tryggja stöðugar tekjur til vegakerfisins í ljósi hraðrar þróunar í orkuskiptum og breyttra samgangna. Það kemur ekki í stað nýrra skatta heldur endurskipuleggur tekjuöflun ríkissjóðs af ökutækjum á sanngjarnari og gegnsærri hátt. Síðasta ríkisstjórn hóf þessa vegferð árið 2021 til að bregðast við þeirri staðreynd að tekjur ríkissjóðs af ökutækjum og eldsneyti hafa rýrnað umtalsvert og munu halda áfram að fjara út. Ástæðurnar eru góðar. Fjölgun rafbíla og sparneytnari bifreiða á vegunum krefjast þess að við endurskoðum hvernig við fjármögnun vegakerfið. Þrátt fyrir breytingar á samsetningu ökutækjaflota þjóðarinnar breytist ekki sú staðreynd að við þurfum áfram að fjármagna viðhald og uppbyggingu vega. Fjármálaáætlun ríkisins gerir ráð fyrir að 1,7% af öllum tekjum ríkissjóðs komi af ökutækjum og umferð. Á nýlegu þingi Samtaka iðnaðarins kom fram að viðhaldsskuldin í vegakerfinu er 200 milljarðar króna, og þar eru ótaldar allar nauðsynlegu nýframkvæmdirnar sem ráðast þarf í. Kílómetragjaldið er leið til að tryggja áframhaldandi fjármögnun á sanngjarnan hátt.Ef það verður samþykkt á Alþingi þá verðjur gjaldið lagt á öll ökutæki með svipuðu fyrirkomulagi og hefur þegar verið tekið upp fyrir rafbíla, vetnisbíla og tengiltvinnbíla frá janúar 2024. Frá 1. júlí 2025 munu öll ökutæki greiða kílómetragjald sem byggist á eknum kílómetrum. Bílar undir 3,5 tonnum munu greiða 6,7 krónur á hvern ekinn kílómetra. Jafnframt verður öllum öðrum gjöldum á jarðefnaeldsneyti, nema kolefnisgjaldinu, aflétt, sem leiðir til þess að bensín og dísilolía lækka umtalsvert í verði. Samhliða þessari breytingu er þó lögð til hækkun á kolefnisgjaldi um 25%, sem áður hækkaði um 60% undir lok síðasta árs. Markmiðið með því er að viðhalda fjárhagslegum hvötum til að skipta yfir í vistvænni orkugjafa. Umræða og gagnrýni Kílómetragjaldið, eins og vænta mátti, hefur vakið töluverða umræðu. Það er eðlilegt því bíllinn er þarfur þjónn landsmanna, og allir hafa skoðun á gjaldtöku af umferð. Hér er tæpt á nokkrum atriðum sem hafa verið í umræðunni og svör við þeim. Áhyggjur af verðhækkunum á eldsneyti. Sumir hafa haft áhyggjur af því að olíufélögin nýti tækifærið til að auka framlegð sína. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur átt í samtali við ASÍ um eftirlit með verðlagningu jarðefnaeldsneytis, og ráðherra mun veita frekari innsýn í þau mál í umræðum um frumvarpið. Rafbílar missa skattalegt forskot. Bent hefur verið á að rafbílar muni nú greiða sama kílómetragjald og bílar sem brenna jarðefnaeldsneyti. Áfram verður þó hagstæðara að aka rafbíl, bæði vegna lægri rekstrarkostnaðar og vegna hækkunar kolefnisgjalds, sem gerir notkun jarðefnaeldsneytis dýrari. Reikningar ráðuneytisins sýna að grunnrekstrarkostnaður rafmagnsbíls verður áfram 14.000 krónum lægri á mánuði en sambærilegs bensínbíls. Af hverju greiða allir bílar undir 3,5 tonnum sama gjald? Útreikningar sýna að munurinn á vegsliti bíla sem vega 2 tonn og 3,5 tonn er hverfandi. Þess vegna þótti ekki rétt að gera gjaldamun á þessum flokkum, enda hefði slíkur munur verið óverulegur og getað leitt til ósanngjarnra afleiðinga, m.a. fyrir rafbíla. Kílómetragjaldið sem landsbyggðarskattur. Sumir hafa gagnrýnt að nýtt gjaldkerfi muni sérstaklega hækka flutningskostnað um landið. Það er hins vegar rangt að allir vörubílar muni hækka í gjöldum. Aðeins allra stærstu vörubílarnir með aftanívagna munu greiða meira, en þar er verið að leiðrétta óeðlilega lága skattlagningu á þyngstu tengivagnana. Hingað til hefur t.d. 18 tonna eftirvagn greitt nánast það sama og venjulegur rafbíll. Mun þetta hækka rekstrarkostnað meðalbílsins? Ekki almennt. Breytingarnar hafa verið stilltar þannig af að áhrifin á meðal-fólksbílinn verða lítil. Bílar sem eyða um 7,5 lítrum á 100 km munu greiða svipað í nýja kerfinu og í því gamla. Á ársgrundvelli munu breytingarnar skipta fólki aðeins nokkrum þúsund krónum, ýmist til hækkunar eða lækkunar, eftir eyðslu. Af hverju erum við að breyta kerfinu? Á árunum 2006 til 2023 lækkuðu tekjur ríkisins af olíu- og bensíngjöldum um 43%. Þessi þróun er óumflýjanleg og áframhaldandi. Með innleiðingu þessa kerfis er verið að ljúka við þá vegferð sem fyrri ríkisstjórn hóf um breytta gjaldtöku af umferð. Kerfið sem verið er að innleiða hefur reynst vel fyrir rafbíla, þar sem 55.000 bílar eru nú þegar skráðir í það. Það er óumflýjanlegt að breyta tekjuöflunarkerfinu, en það hefur verið gert með varfærnum hætti þar sem jafnvægi er haldið milli skattlagningar og hagrænna hvata til orkuskipta. Að lokum Framkvæmd gjaldtöku og skráningar á rafbílum hefur gengið vel, og með þessari breytingu tryggjum við áframhaldandi fjármögnun vegakerfisins á sanngjarnan og sjálfbæran hátt. Kerfið er ekki skattahækkun, heldur einföldun og leiðrétting á núverandi ósamræmi. Breytingin kemur verst út fyrir þá sem eru á stóru og eyðslufreku ökutækjunum á höfuðborgarsvæðinu, en mun gagnast þeim sem keyra minna eða eru á sparneytnari bílum, sérstaklega á landsbyggðinni. Það verður alltaf hægt að finna einhvern hóp sem kemur verr út úr nýja kerfinu en gamla kerfinu, en núverandi kerfi er líka langt frá því að vera fullkomið. Það er réttlætismál að allir greiði í samræmi við notkun sína á vegakerfinu. Með þessu kerfi tryggjum við framtíðartekjur til vegagerðar á Íslandi á gagnsæjan og réttlátan hátt. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Samfylkingin Bílar Vegtollar Kílómetragjald Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hvernig getur NATO verið, eða hafa verið, flott og fínt, en ESB slæmt? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Kjósum Björn Þorsteinsson sem næsta rektor Háskóla Íslands! Geir Sigurðsson Skoðun Af hverju kílómetragjald? Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Hvar eru verndarar tjáningarfrelsisins nú? Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Skoðun Skipulagsslys í Garðabæ Aðalsteinn Árni Baldursson Skoðun Týndir hælisleitendur Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við styðjum Magnús Karl Magnússon sem næsta rektor Háskóla Íslands Hópur starfsmanna Háskóla Íslands Skoðun Rödd Íslands athlægi um allan heim Ástþór Magnússon Skoðun Konur gegn hernaði og nýlenduhyggju Lea María Lemarquis Skoðun Sagnaarfur Biblíunnar – Jósefssagan og einelti Sigurvin Lárus Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Yfir til ykkar, VR-ingar! Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig getur NATO verið, eða hafa verið, flott og fínt, en ESB slæmt? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kjósum Björn Þorsteinsson sem næsta rektor Háskóla Íslands! Geir Sigurðsson skrifar Skoðun Af hverju kílómetragjald? Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Ingibjörg Gunnarsdóttir – magnaður árangur Bryndís Eva Birgisdóttir skrifar Skoðun Hvar eru verndarar tjáningarfrelsisins nú? Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Flosa til formennsku í VR Pétur Hrafn Sigurðsson skrifar Skoðun Konur gegn hernaði og nýlenduhyggju Lea María Lemarquis skrifar Skoðun Týndir hælisleitendur Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Stenzt ekki stjórnarskrána Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Skipulagsslys í Garðabæ Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar Skoðun Langþráður áfangi að hefja skimun fyrir ristilkrabbameini Ágúst Ingi Ágústsson skrifar Skoðun Don Quixote og veruleikafirring evrópskra stjórnmálamanna Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Sagnaarfur Biblíunnar – Jósefssagan og einelti Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Við styðjum Magnús Karl Magnússon sem næsta rektor Háskóla Íslands Hópur starfsmanna Háskóla Íslands skrifar Skoðun Innanlandsflug eru almenningssamgöngur ! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stígamót í 35 ár Drífa Snædal skrifar Skoðun Nýtum atkvæði okkar VR-ingar Ásgeir Geirsson skrifar Skoðun Hvað segir ein mynd af barni okkur? Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Stöndum frekar með selum en syndaselum og pólitískum klækjarefum Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Magnús Karl: Fyrsta flokks kennari, fyrsta flokks rektor Þorri Geir Rúnarsson skrifar Skoðun Er seinnivélin komin? Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ingibjörg Gunnarsdóttir - Rektor með framtíðarsýn fyrir Háskola Íslands Ármann Höskuldsson skrifar Skoðun Rödd Íslands athlægi um allan heim Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Kolbrún Pálsdóttir – Öflugur leiðtogi fyrir Háskóla Íslands Ágúst Arnar Þráinsson,Kolbrún Lára Kjartansdóttir skrifar Skoðun Lokað á lausnir í leikskólamálum Einar Þorsteinsson skrifar Skoðun Ég styð Magnús Karl Jón Gnarr skrifar Skoðun Hlutverk og sjálfsmynd Íslands á alþjóðavettvangi Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Samningamaðurinn Trump & narssisisminn Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Hver er hin raunverulega barátta Bandaríkjastjórnar? Elvar Eyvindsson skrifar Sjá meira
Við styðjum Magnús Karl Magnússon sem næsta rektor Háskóla Íslands Hópur starfsmanna Háskóla Íslands Skoðun
Skoðun Hvernig getur NATO verið, eða hafa verið, flott og fínt, en ESB slæmt? Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Don Quixote og veruleikafirring evrópskra stjórnmálamanna Gunnar Bragi Sveinsson skrifar
Skoðun Við styðjum Magnús Karl Magnússon sem næsta rektor Háskóla Íslands Hópur starfsmanna Háskóla Íslands skrifar
Skoðun Stöndum frekar með selum en syndaselum og pólitískum klækjarefum Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Ingibjörg Gunnarsdóttir - Rektor með framtíðarsýn fyrir Háskola Íslands Ármann Höskuldsson skrifar
Skoðun Kolbrún Pálsdóttir – Öflugur leiðtogi fyrir Háskóla Íslands Ágúst Arnar Þráinsson,Kolbrún Lára Kjartansdóttir skrifar
Skoðun Hlutverk og sjálfsmynd Íslands á alþjóðavettvangi Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir skrifar
Við styðjum Magnús Karl Magnússon sem næsta rektor Háskóla Íslands Hópur starfsmanna Háskóla Íslands Skoðun