Körfubolti

Einn besti dómarinn segir að til­laga á árs­þingi KKÍ fari á skjön við leik­reglur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristinn Óskarsson hefur verið einn besti dómari landsins í marga áratugi. Hér sést hann að dæma leik.
Kristinn Óskarsson hefur verið einn besti dómari landsins í marga áratugi. Hér sést hann að dæma leik. Vísir/Bára

Kristinn Óskarsson er ekki bara einn besti körfuboltadómari Íslands því hann er einnig einn sá leikreyndasti. Hann hefur sterka skoðun á nýrri tillögu fyrir komandi ársþing Körfuknattleikssambands Íslands.

Kristinn hefur dæmt í efstu deild síðan löngu fyrir aldarmót og er fyrrum körfuboltadómari ársins.

Kristinn bendir á það í nýrri færslu á samfélagmiðlum að nú liggi vond tillaga fyrir ársþingi KKÍ, tilllaga sem fari á skjön við leikreglur.

„Í leikreglum (gr. 4.3.3) þá segir að heimalið skuli leika í ljósum búningum og gestalið í dökkum. Þetta einfaldar allan undirbúning og það gerist aldrei að lið mæti með ranga búninga til leiks. Þá er líka tryggt að munur á búningum sé mikill í sjónvarpi. Sama grein heimilar að ef að lið komi sér saman um annað fyrirkomulag þá megi þau semja um það,“ skrifar Kristinn.

Tillagan kemur frá Þór á Akureyri en þar er strikað yfir það að heimalið skuli spila í ljósum búningum en útiliðið í dökkum.

Þar er lagt til að öll félög skuli hafa yfir að ráða ljósum búningum og dökkum búningum. Félög muni síðan tilkynna KKÍ um það fyrirfram hvaða búningi þau ætli að spila í á heimavelli.

„Á léttu nótunum má kannski segja að við Þórsarar séum svo gamaldags að okkur finnst skemmtilegra að Haukar, séu rauðir á heimavelli, Valsarar rauðir, Njarðvíkingar grænir, Keflavík dökkbláir, Stólarnir vínrauðir, Þór Þ grænir og svona mætti lengi telja. Búningar þessara liða og margra annara eru sögufrægir og vilja eflaust flestir stuðningsmenn horfa á sitt lið í réttum litum á heimavelli,“ segir í greinargerð Þórsara.

Kristinn er aftur á móti full alvara í mati sínu að því hversu slæm tillagan sé.

„Tillagan er vond því hún er breyting á leikreglum sem FIBA er ekki hrifið af. Hún eykur líkur á mistökum og heimild er í leikreglum fyrir t.d. Þór á Akureyri að semja við alla sína gesti að Þór leiki í sínum rauðu búningum ef þeir kjósa það,“ skrifar Kristinn.

Kristinn bendir á það að þessi tillaga leysi ekki neitt, heldur eykur hún flækjustig og hættu á mistökum, er á skjön við leikreglur, dregur úr ánægju áhorfenda til lengri tíma og er almennt alger þvæla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×