Viðskipti innlent

Við­búinn hærra vöru­verði og færri ferða­mönnum vegna tolla

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar. Vísir/Vilhelm

Mögulegt tollastríð gæti haft umtalsverð áhrif á íslenskan almennig að mati seðlabankastjóra. Vöruverð gæti hækkað og ferðamenn síður skilað sér til landsins. Seðlabankinn vinnur að greiningu á líklegum áhrifum.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri mættu í morgun fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis til þess að fara yfir skýrslur peningastefnunefndar Seðlabankans á síðasta ári þar sem þeir voru spurðir um möguleg áhrif boðaðra tollastríða.

Ásgeir sagði áhrifin geta reynst töluverð og líkti þeim við það sem sást í Covid þegar framleiðslukeðjur rofnuðu.

„Við gætum verið að sjá verð á vörum hækka á alþjóðamarkaði. Það gæti alveg haft áhrif hér. Verð á bílum hækkaði, Ísland flytur inn allar varanlegar neysluvörur eins og bíla og þvottavélar og þetta gæti allt saman hækkað.“

Tollastríð geti haft áhrif á hagvöxt á heimsvísu og þar á meðal á Íslandi. Eftirspurn eftir vörum dragist saman auk þess sem það sem keypt sé frá útlöndum verði dýrara. Þetta geti haft áhrif á verðbólgu.

„Það sem ég heyri úti, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu er að seðlabankar þar eru farnir að óttast að þeir muni ekki geta lækkað meira og í Bandaríkjunum eru menn meira segja farnir að velta því fyrir sér að seðlabankinn þurfi að hækka vexti.“

Áhyggjur af ferðaþjónustu

Ferðaþjónustan á Íslandi sé auk þess rekin áfram á bandarískum ferðamönnum að miklu leyti.

„Ef það fer að verða mjög mikill óstöðugleiki í Bandaríkjunum og jafnvel kreppa að þá mun það koma fram í færri heimsóknum til okkar, og ég held að það séu þau áhrif sem við þurfum kannski helst að hafa áhyggjur af.“

Íslendingar geti reynst í erfiðri stöðu færist heimurinn að einhverju leyti úr bandalögum í tvíhliða samninga.

„Öll ríki eru stór og munu beita afli gegn okkur. Fara að heimta eitthvað í staðinn, fiskveiðiheimildir, einhver réttindi eða eitthvað annað. Svo er það líka að við flytjum vörur út til ákveðinna landa og kaupum vörur frá öðrum löndum. Þannig um leið og við förum að leggjast í tvíhliða samninga og tollasamninga erum við komin aftur í kreppuna miklu þar sem við þurftum að afnema vínbann á Íslandi og kaupa Spánarvín til að geta selt saltfisk til Spánar,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Seðlabankinn vinnur nú að greiningu á mögulegum efnahagslegum áhrifum tollastríðs á íslenskan þjóðarbúskap.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×