Viðskipti innlent

Hafi talið samninga­leiðina besta frá upp­hafi

Árni Sæberg skrifar
Bjarni Benediktsson kannast ekki við neina „leið Bjarna“ í máli ÍL-sjóðs.
Bjarni Benediktsson kannast ekki við neina „leið Bjarna“ í máli ÍL-sjóðs. Vísir/Vilhelm

Bjarni Benediktsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, segist hafa talið þá leið sem valin hefur verið í málefnum ÍL-sjóðs þá bestu frá upphafi. Tal um „leið Bjarna“ í þeim efnum sé einkennilegt.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið tilkynnti í gær að viðræðunefnd fjármála- og efnahagsráðherra og ráðgjafar lífeyrissjóða hefðu saman mótað tillögur um uppgjör HFF-bréfa sem greiða muni fyrir slitum ÍL-sjóðs, áður Íbúðalánasjóðs.

Fái tillögurnar framgang á fundi ráðuneytisins og kröfuhafa mun ÍL-sjóðsmálið vera leitt til lykta en það náði hámæli fyrir rúmum tveimur árum þegar Bjarni kynnti áform um lagasetningu um slit ógjaldfærra opinberra stofnana.

Bjarni var harðlega gagnrýndur á sínum tíma og meðal annars sagður ætla að seilast ofan í vasa landsmanna, með því að gera ekki upp skuldir ÍL-sjóðs við lífeyrissjóðina. Til að mynda gáfu tuttugu lífeyrissjóðir út yfirlýsingu þar sem áformin voru fordæmd.

Kannast ekki við leið Bjarna

Framkvæmdastjóri Gildis - lífeyrissjóðs sagði í hádegisfréttum í gær að hann fagnaði því að tillögurnar væru fram komnar. Þær væru frekar í takt við þá leið sem lífeyrissjóðirnir vildu en upphaflegar hugmyndir Bjarna.

„Nú eru komin rúm tvö ár frá því að ég birti pistil sem ég ætla að endurbirta (hér neðst) í tilefni af einkennilegum fullyrðingum sem fljúga fyrir, m.a. um ,,leið Bjarna" í ÍL-sjóðs málinu, sem sögð er hafa verið að slíta ÍL sjóði sama hvað,“ segir Bjarni í færslu á opinberri Facebooksíðu sinni.

Samningaleiðin farsælust

Hann segir að það verði vonandi ljóst þeim, sem hafa fyrir því að kynna sér málið, að samningaleið hefði að hans mati verið farsælust frá upphafi, þótt það hefði langan tíma að koma þeim viðræðum af stað enda væru hagsmunir miklir á alla kanta.

Frumvarp um almenna lagaheimild fyrir ríkið til að slíta sjóðum sem þessum ætti að hans mati að koma fram, algerlega óháð niðurstöðu þessa máls. Það sé mikilvægt til framtíðar, jafnvel þótt samið verði um uppgjör og slit ÍL-sjóðs, að lögfesta þær reglur sem er að finna í frumvarpinu.

„Ég fagna því að niðurstaða hafi fengist hjá samninganefndum í þessu stóra hagsmunamáli, sem ég taldi óforsvaranlegt annað en að setja á dagskrá og fá lausn á. Það er óskandi að málið fái lendingu í framhaldinu hjá þeim sem halda á kröfunum og í þinginu.“

Til einhvers að hefja vegferðina

Með því að málið leysist muni, samkvæmt ráðuneyti hans fyrrverandi:

  1. Greiðsluflæði ríkissjóðs batna
  2. Skuldastaða A- hluta ríkissjóðs lækka um amk 5% af VLF
  3. Ríkisábyrgðir lækka um 88%

„Það var þá til einhvers að setja málið af stað sýnist mér,“ segir Bjarni






Fleiri fréttir

Sjá meira


×