Skoðun

Rektor sem hlustar og miðlar: X-Björn

Gunnar Þór Jóhannesson og Katrín Anna Lund skrifa

Nú stendur fyrir dyrum kjör til rektors Háskóla Íslands. Komandi rektor bíður það verkefni að leiða háskólann í gegnum samfélagslegt umrót og efla stuðning almennings og stjórnmálafólks við vísindastörf. Miklu máli skiptir að nýr rektor hafi skýra sýn á grundvallarhlutverk háskóla í samfélagi dagsins í dag. Það er síður en svo sjálfssagt að frjáls og skapandi háskóli sé til staðar í okkar litla samfélagi. Háskólar víða um heim liggja undir árásum, enda eru þeir prímusmótorar gagnrýninnar hugsunar og sköpunar sem er eitthvað sem valdhöfum víða líkar ekki allskostar við. Slík öfl er líka að finna í íslensku samfélagi; öfl sem óttast kraftmikið háskólastarf sem heldur á lofti merki vísinda og málefnalegrar samræðu, öfl sem snúa staðreyndum á hvolf og fara um með boðum um bönnum um það sem má segja og orða.

Við þessar aðstæður skiptir mestu máli að rektor sé leiðandi í að skapa menningu innan skólans sem einkennist af trausti, lýðræði, jafnrétti og upplýstum samræðum. Rektor þarf að vera í stakk búinn til að leysa úr læðingi kraft háskólasamfélagsins til góðra verka. Hann, einn og sér, mun ekki leysa úr vandamálum háskólakerfisins hér á landi en hans hlutverk er að efla samtakamáttinn. Þess vegna þarf háskólasamfélagið ekki einn „sterkan“ leiðtoga, heldur þarf það leiðtoga sem eflir öll sem í háskólanum starfa til að tala máli upplýsingar og frjálsrar þekkingarsköpunar. Rektor þarf að hafa áhrif til þess að byggja upp samfélag þar sem traust og samheldni ríkir, þar sem virðing er borin fyrir öllu starfsfólki, stundakennurum, ræstingafólki, akademískum starfsmönnum og fólki sem starfar í stjórnsýslu og stoðkerfi skólans.

Við teljum að Björn Þorsteinsson sé best til þess fallinn að leiða Háskóla Íslands á þessari leið. Hann hefur talað skýrt fyrir þeirri sýn sinni að háskólar séu vin í eyðimörk upplýsingaóreiðu, nokkurs konar andrými þar sem nemendum og starfsfólki gefst skjól til að stunda sín fræði og skapa nýja þekkingu og tækifæri. Andrými felur líka í sér þá sýn að í hverskyns sköpun felist andóf og möguleg endurnýjun sem er frumkraftur háskólastarfs.

Við undirrituð höfum átt í farsælu og gefandi samstarfi við Björn og erum sannfærð um kosti hans. Sem vinnufélagi er Björn sanngjarn, strangheiðarlegur, vandvirkur og víðsýnn. Hann tekst á við áskoranir, vegur og metur aðstæður, hlustar, sýnir skilning og er tilbúinn til að taka gagnrýna afstöðu og miðla henni. Við teljum hæfileikann til að hlusta og miðla af kostgæfni og heiðarleika einn þann mikilvægasta sem góður rektor þarf að hafa. Í því felst geta til að skapa sátt, opna á sjónarmið og efla upplýsta samræðu. Við treystum Birni til að vinna af heilum hug og krafti að því að byggja brýr skilnings og samstöðu þvert á fræðasvið og efla stöðu háskólans í samfélaginu.

Gunnar Þór Jóhannesson, Prófessor í ferðamálafræði, Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ

Katrín Anna Lund, Prófessor í ferðamálafræði, Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ




Skoðun

Sjá meira


×