Skoðun

Al­mannaréttur er sá réttur sem al­menningi er á­skilinn í lögum til frjálsra af­nota af landi og lands­gæðum

Skírnir Garðarson skrifar

Almannaréttur er sá réttur sem almenningi er áskilinn í lögum til frjálsra afnota af landi og landsgæðum, til farar um land og vötn.

Þannig eru nú lög um náttúruvernd og almannahagsmuni borgaranna, sett til að tryggja rétt almennings til frjálsra ferða án þess að eiga á hættu að fá á sig hótanir um lögregluaðgerðir.

Ef hins vegar sveitastjórar, oddvitar eða aðrir heimamenn tak þátt í að hamla og tálma almenningi ferðir um landið er hætta á ferðum.

Svoleiðis hegðun hlýtur að teljast brot á almennum hegningarlögum, 225 grein, (brot gegn frjálsræði manna).

Þetta hlýtur einnig að teljast brot á lögum nr. 60, 10. apríl 2013 (um almannarétt og náttúruvernd).

Undanfarin ár hafa heilu jarðirnar, oft með vatns- eða veiðiréttindum, komist í eigu fjárfesta, útlendra auðmanna, eða braskara. Þá eru oftar en ekki settir upp hengilásar, skilti og jafnvel öryggismyndavélar, til þess eins að fæla sauðsvartann almenning frá, því slíku liði er illa við að borgarar landsins séu að þvælast um.

Sums staðar hafa heimamenn, jafnvel sveitarstjórarnir sjálfir, tekið þátt í undirlægjuháttinum, því ekki má styggja þá sem ríkir eru af peningum eða jarðnæði, það er gömul saga og ný.

Einni undantekningu man ég þó eftir þegar sveitarstjóri Mýrdalshrepps lét hafa eftir sér að hann gæti ómögulega borið virðingu fyrir útlendum auðmanni sem keypt hafði upp heila jörð í Mýrdalnum og hafði sá formlega óskað eftir því að fá að hafa hana í friði, en á landi auðjöfursins eru mikil vatns- og veiðiréttindi. Rök sveitarstjórans voru skýr, "hvernig á maður að bera virðingu fyrir einhverjum sem maður hefur aldrei séð?.

Sveitarstjóri Mýrdalshrepps á þakkir inni hjá mér og öðrum vegna þess arna. Sömu sögu er ekki að segja um oddvita tveggja sveita fyrir vestan norðan, nefnilega Dalabyggðar og Langanesbyggðar, en báðir hafa sýnd af sér hreinan undirlæjuhátt gagnvart frekjudöllum sem hafa horn í síðu almennings.

Rök oddvitanna eru "að braskararnir verði í skjóli auðs síns að hafa sína hentisemi" og að þeir "verði að fá að hafa sínar skoðanir í friði", eins og oddviti Langanesbyggðar orðar það snilldarlega í skilaboðum til undirritaðs nýverið.

Svona lagað gengur ekki og má segja að þarna sé um að ræða algert rugl, en svona pótindátar eru náttúrulega bara að sýna almenningi köldu hliðina.

Ég hvet almenning til að kynna sér réttindi sín og fara að dæmi sveitarstjóra Mýrdalshrepps, sem reyndar er einhver sá óhræddasti og beinskeyttasti sveitarstjórnarmaður sem ég veit að nefna.

Góða ferð um lönd og strönd góðir hálsar.

Höfundur er prestur og áhugamaður um útivist, (þó ekki strangar fjallgöngur.)




Skoðun

Sjá meira


×