Innlent

Byggðajöfnunarmál að fækka sýslu­mönnum

Árni Sæberg skrifar
Þorbjörg Sigríður fagnar því að frumvarp hennar um fækkun sýslumanna hafi verið afgreitt úr ríkisstjórn í morgun.
Þorbjörg Sigríður fagnar því að frumvarp hennar um fækkun sýslumanna hafi verið afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Vísir/Einar

Dómsmálaráðherra segir frumvarp um sameiningu sýslumanna hafa verið afgreitt úr ríkisstjórn í dag. Hún á von á líflegum umræðum á Alþingi. Sýslumannsembættin eru níu í dag en verða eftir daginn í dag eitt.

Það var til umræðu á ríkisstjórnarfundi í dag, frumvarp mitt um sameiningu sýslumanna, sem hefur þann tilgang að efla embættin og efla þjónustu í byggðum landsins. Það var afgreitt út úr ríkisstjórn í dag, sem ég er auðvitað mjög ánægð með,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður ræddi við hana.

Til hefur staðið um nokkurt skeið að sameina sýslumannsembættin en boðuð frumvörp Jóns Gunnarssonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra, þess efnis fengu ekki brautargengi á síðasta kjörtímabili. Þorbjörg Sigríður tilkynnti starfsmönnum sýslumannsembættanna í lok febrúar að hún hyggðist leggja sameiningarfrumvarp fram í mars.

Minnkar yfirstjórn og dregur úr kostnaði

Þorbjörg Sigríður segir að með því að fækka sýslumönnum úr níu í einn verði til öflugt embætti með 27 starfstöðvar um land allt.

„Þetta er einföldunarmál og við erum að minnka yfirstjórn, draga úr kostnaði í yfirstjórn til þess að geta aukið þjónustu. Mér finnst mikilvægt að það komi fram að þetta er byggðajöfnunarmál og réttlætismál um aðgengi að þjónustu. Að það verði blómleg starfsemi í 27 starfstöðvum og ég hlakka til að sjá umræðu um þetta mál inni á þingi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×