Fótbolti

Fyrir­liði Kósóvó fór meiddur af velli

Valur Páll Eiríksson skrifar
Amir Rrahmani meiddist í leik Napoli við Venezia og er tæpur fyrir leiki Kósóvó og Íslands.
Amir Rrahmani meiddist í leik Napoli við Venezia og er tæpur fyrir leiki Kósóvó og Íslands. Fabio Sasso / GocherImagery/Future Publishing via Getty Images

Fyrirliði landsliðs Kósóvó, sem mætir Íslandi í umspili Þjóðadeildarinnar síðar í vikunni, fór meiddur af velli í leik liðs síns um helgina.

Amir Rrahmani er fyrirliði Kósóvó og á meðal betri leikmanna liðsins. Hann leikur með Napoli í ítölsku A-deildinni en hann fór meiddur af velli á 77. mínútu þegar Napoli gerði markalaust jafntefli við Venezia í Feneyjum í gær.

Antonio Conte, þjálfari Napoli, telur að meiðslin séu óalvarleg en skoða þurfi stöðu Rrahmani í samráði við læknateymi kósóvska liðsins. Vera má að Rrahmani missi af leikjunum við Ísland en eins og sakir standa er Rrahmani í hópi liðsins fyrir leikina sem fram undan eru.

Ísland mætir Kósóvó í Pristina á fimmtudagskvöldið kemur klukkan 19:45 og kemur landsliðið saman í vikunni fyrir fyrstu leiki Arnars Gunnlaugssonar við stjórnvölin. Liðin mætast öðru sinni í Murcia á Spáni seinni part sunnudags.

Báðir landsleikir Íslands verða sýndir beint á Stöð 2 Sport í opinni dagskrá.


Tengdar fréttir

Vantar fleiri klukku­stundir í sólar­hringinn

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, segist ekki hafa áttað sig á því hversu tímafrekt starfið yrði. Líkt og hjá félagsliðum virðist vanta fleiri klukkustundir í sólarhringinn.

Orri leiðtogi nýrrar gullkynslóðar

„Þetta er virkilega góð tilfinning,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, um valið á hans fyrsta leikmannahópi. Arnar kynnti 23 manna hópinn sem tekst á við Kósóvó í umspili Þjóðadeildarinnar síðar í mánuðinum.

Aðeins spilað 731 mínútu af fótbolta síðan 2023

Athygli vakti að Aron Einar Gunnarsson hafi verið valinn í fyrsta landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar fyrir komandi leiki karlalandsliðsins í fótbolta við Kósóvó í umspili Þjóðadeildarinnar. Misjafnar skoðanir eru á valinu.

Ómögu­legt fyrir Arnar að velja Gylfa

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, segir aðspurður um ákvörðun sína að velja Gylfa Þór Sigurðsson ekki í landsliðshóp Íslands fyrir komandi verkefni, það nær ómögulegt fyrir sig að velja leikmann sem spilar á Íslandi í verkefni í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×