Nadine tekin í bólinu og Marta María um leið Jón Þór Stefánsson skrifar 17. mars 2025 19:00 „Lykillinn virðist vera að hafa þetta ekki of klikkað til að vera ótrúverðugt. Þetta þarf að vera eitthvað sem gæti mögulega verið satt,“ segir Nadine Guðrún Yaghi. Vísir „Facebook-hrekkurinn lifir enn góðu lífi á minni skrifstofu,“ segir Nadine Guðrún Yaghi, forstöðumaður samskipta- og markaðssviðs flugfélagsins Play, en hún verður reglulega fyrir barðinu á þeim. Í dag birtist færsla á Facebook-vegg hennar um nýtt hlaðvarp á hennar vegum, sem á að heita „Nadda í Orlofi“, en sjálf kannast hún ekki við það. „
Ég virðist ekki læra nægjanlega vel af mistökunum. Ég gleymi svo oft að læsa tölvunni þegar ég stend upp. Þá eru félagar mínir mjög fljótir til og þetta vekur mikla lukku á samfélagsmiðlum.“ Nadine kannast ekki við að hún sé að byrja með nýtt hlaðvarp.Facebook Færslan um nýja hlaðvarpið er sú þriðja sem birtist á vegg hennar á skömmum tíma. Vinnufélagarnir bera ábyrgð á þeim öllum. Í sumar sagði „Nadine“ frá því að hún væri orðin alveg sjúk í sjósund. Og í kjölfar kosninganna birtist færsla þar sem hún virtist fagna því að hún væri orðin þingmannsfrú, þegar eiginmaður hennar Snorri Másson komst á þing, og því gæti orðið Alþingi meira „gellumiðað“. Nadine lendir reglulega í Facebook-hrekkjalómumfacebook Skilaboð frá Mörtu Maríu komu upp um hrekkinn Nadine segist ekki hafa frétt af Facebook-færslu dagsins fyrr en fjölmiðlakonan Marta María Winkel Jónasdóttir, oft kennd við Smartland, hafði samband við hana „Ég er ekki að byrja með þetta hlaðvarp. Það sem kemur mér mest á óvart er að margir virðast halda það. Ég fékk skilaboð frá Mörtu Maríu,“ segir Nadine. Hún útskýrir að Facebook-hrekkjalómarnir feli tilkynningarnar hjá henni, þannig hún fái ekki veður af því þegar einhver „lækar“ eða skrifar ummæli við færsluna. „Ég fattaði þetta ekki fyrr en hún poppaði upp og bauð mér í viðtal um nýja hlaðvarpið mitt. Ég skildi náttúrulega ekkert um hvað hún var að tala. Þetta er alltaf jafn skemmtilegt“ Facebook-hrekkir sígildir En lifir Facebook-hrekkurinn góðu lífi, eða er hann á undanhaldi? „Ég get ekki talað fyrir aðra. En fólkinu og vinum mínum hér á skrifstofunni finnst þetta sérstaklega fyndið og gerir þetta reglulega. Ég veit ekki hvort þetta sé að færast í aukana almennt í samfélaginu. Þessir Facebook-hrekkir, hafa þeir einhvern tímann dáið? Ég veit það ekki. Ég held ekki. Er þetta ekki alltaf jafn sniðugt af einhverjum ástæðum?“ spyr Nadine. „Kannski eru vinir mínir hjá Play að gera þetta vinsælt á ný?“ Lykillinn að góðum Facebook-hrekk „Lykillinn virðist vera að hafa þetta ekki of klikkað til að vera ótrúverðugt. Þetta þarf að vera eitthvað sem gæti mögulega verið satt,“ segir Nadine. „Ég tek þessu ekki persónulega. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt sjálfri, og hlæ mjög mikið. Ég er bara spennt að sjá hvað þeim tekst að gerast næst.“ Margir góðir Facebook-hrekkir Umfjöllun um Facebook-hrekki í íslenskum fjölmiðlum virðist hafa verið meira áberandi í upphafi síðasta áratugar, frá um það bil 2010 til 2015. Árið 2011 var greint frá Facebook-hrekk sem fékk fjölda fólks til að halda eldgos væri hafið í Heklu. Þá deildi fjöldi fólks gamalli frétt Mbl.is með fyrirsögninni: „Eldgos hafið í Heklu“. Í kjölfarið mun fjöldi fólks hafa haft samband við fréttastofu Stöðvar 2 og kvartað yfir því að ekkert væri fjallað um þetta eldgos. Þá mun Veðurstofan hafa fengið álíka mörg símtöl. Tvær vinkonur sem fóru á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 2014 vöktu mikla athygli á Facebook. Önnur þeirra birti færslu þar sem hún fullyrti að hin hefði sofnað í kojunni í Herjólfi í heilar sjö klukkustundir. Hún hefði því farið fram og til baka með Herjólfi nokkrum sinnum, í raun farið fjórum sinnum á Þjóðhátíð. „Besti Facebook-hrekkur sögunnar“ Fjölmiðlamennirnir Atli Fannar Bjarkarson og Bergsteinn Sigurðsson háðu einskonar ritdeilu, á léttu nótunum, um Facebook-hrekki árið 2014. Atli Fannar byrjaði með pistli í Bakþönkum Fréttablaðsins sem bar titilinn: „Besti Facebook-hrekkur sögunnar“. Þar sagði hann frá því þegar hann hefði breytt stillingunum á Facebook hjá Bergsteini, sem var reyndar ekki nafngreindur í Bakþönkunum, þannig að einungis hann sjálfur gat séð eigin færslur. „Þetta var auðvitað hrein og klár martröð fyrir minn mann. Ég fylgdist með honum dæla inn snilldarlegum athugasemdum um menn og málefni, eitthvað sem hefði rakað inn tugum læka undir venjulegum kringumstæðum, án þess að uppskera svo lítið sem eina athugasemd. Hann bar harm sinn í hljóði en ég sá að sjálfstraustið var hægt og rólega að gufa upp. Spurður út í lækþurrkinn reyndi hann að bera sig vel og gerði lítið úr lækþorstanum sem virtist þó beintengdur lífsviljanum, ef eitthvað er að marka þessa ómannúðlegu tilraun mína,“ skrifaði Atli meðal annars í þessum pistli. Bergsteinn svaraði fyrir sig á Facebook, en hann kannaðist ekki alveg við þessa lýsingu Atla. Eins og hann lýsti þessu tók hann ekki eftir þessari breytingu þar sem hann var við vinnu, á meðan Atli grenjaði úr hlátri. „Ég viðurkenni að það fór að fara svolítið í taugarnar á mér að það sem eftir lifði mánaðar mátti ég ekki rekast á Atla án þess að hann veðraðist upp og talaði sigri hrósandi um hvernig hann „hefði nú tekið mig þarna um daginn“.“
Samfélagsmiðlar Grín og gaman Mest lesið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Fleiri fréttir Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Sjá meira