Innlent

Óska eftir mynd­efni af Ingólfs­torgi frá vitnum

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Frá vettvangi á föstudaginn.
Frá vettvangi á föstudaginn. Vísir/Kolbeinn Tumi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að myndefni frá vegfarendum sem áttu leið um Ingólfstorg þegar stunguárás átti sér stað og hópslagsmál.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að tilkynning um líkamsárásina hafi borist klukkan 22:57, og þá hafi verið nokkuð af fólki á ferli á svæðinu.

„Því er ekki ósennilegt að myndefni af atburðarásinni, eða hluta hennar, sé að finna í símum einhverra.“

„Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfangið [email protected] og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi.“

Beittu hníf og kylfu

Þá segir í tilkynningunni að í stunguárásinni hafi bæði hníf verið beitt og kylfu.

Tveir hafi verið fluttir á sjúkrahús eftir árásina og báðir hafi verið útskrifaðir.

„Mikil mildi þykir að ekki fór ver. Rannsókn málsins, sem er mjög umfangsmikið, miðar ágætlega.“

Áðan var greint frá því að allir þrettán sem voru handteknir í tengslum við rannsóknina hefðu verið látnir lausir.


Tengdar fréttir

Út­skrifaðir af spítala og allir lausir úr haldi

Allir þrettán einstaklingarnir sem handteknir voru í tengslum við hópslagsmál og stunguárás í miðbæ Reykjavíkur hafa verið látnir lausir. Tveir voru lagðir inn á sjúkrahús eftir stunguárásina og hafa þeir báðir verið útskrifaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×