Skoðun

Veiðileyfagjaldið til þjóðarinnar - loksins

Bolli Héðinsson skrifar

Er loksins komið að því að þjóðin fái í sinn hlut það sem henni ber af raunverulegu aflaverðmæti fyrir afnot af fiskimiðunum? Við erum öll minnug þess að ríkisstjórnin sem fór frá sá ekki á sjö ára ferli sínum ástæðu til að krefja útgerðina um raunverulegt afnotagjald af fiskimiðunum. Þess í stað lagði hún á málamyndagjald sem gerði útgerðarfyrirtækjunum kleift að eyða umframfjármunum sínum í kaup á majónesverksmiðju, hjúkrunarþjónustu, skipafélagi, skyndibitastöðum, fjölmiðlum, smásöluverslun og lúxusíbúðum svo aðeins fátt eitt sé nefnt. Allt eru þetta fjármunir sem hefðu getað gengið upp í þá „innviðaskuld“ í heilbrigðis-, samgöngu- og menntamálum sem fyrri ríkisstjórn skilur eftir sig.

Skýr skilaboð

Í stefnuskrám flokkanna þriggja sem nú sitja í ríkisstjórn er því lýst með afdráttarlausum hætti að sjávarútveginum beri að greiða hærra gjald fyrir nýtingu á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.

Hjá Viðreisn er það orðað svo að innheimt verði „fullt gjald og nýtingarleyfi til afmarkaðs tíma. Gjaldið taki mið af því verði sem útgerðir leigja veiðileyfi sín á milli.“

Flokkur fólksins orðar það svo að „Sjávarútvegsfyrirtæki greiði fullt verð fyrir aðgang að auðlindunum með hærra gjaldi.“

Samfylkingin vill að „nýtingarréttur á náttúruauðlindum sé tímabundinn og úthlutað gegn fullu gjaldi. Tryggja þarf almenningi réttmæta hlutdeild í þeim umfram arði sem tilkominn er vegna auðlindarentu af eigum þjóðarinnar og koma um leið í veg fyrir að einstakir aðilar hagnist óeðlilega á því að taka megnið af auðlinda rentunnafdrái til sín.

....hagsmunir þjóðarinnar og almennings verði í forgrunni og að fullt gjald verði innheimt fyrir fiskveiðiauðlindina. Einfaldasta leiðin að því marki felst í árlegri innköllun hóflegs hluta aflaheimilda og útboði nýtingarleyfa til takmarkaðs tíma.“

Þetta eru afar skýr skilaboð núverandi ríkisstjórnarflokka til kjósenda í aðdraganda kosninganna.

Aðilar sem bjóðast til að borga margfalt veiðigjald

Útgerð á þorskveiðum sem telur sig ekki hafa nægan kvóta þarf að taka á leigu viðbótarkvóta. Hún þarf að finna aðra útgerð sem er aflögufær og greiða henni leigu fyrir hvert kg af þorski. Útgerðin sem hefur umráðarétt viðbótarkvótans greiðir 29 kr. til ríkisins fyrir umráðaréttinn sem hún svo leigir út fyrir 480 kr.

·Veiðigjald greitt í ríkissjóð: 29 kr. fyrir hvert kg af þorski

·Nýjasta verð á leigumarkaði: 480 kr. „ „ „

·Landssamband smábátaeigenda

býðst til að borga: 100 kr. „ „ „

·Samtök fiskframleiðenda og

útflytjenda bjóðast til að borga: 150 kr. „ „ „

Í landinu eru a.m.k. tvenn samtök sem hafa boðist til að borga í ríkissjóð margfalt það veiðigjald sem nú er innheimt af útgerðinni. Landssamband smábátaeigenda og Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda hafa boðist til að borga 100 og 150 kr. fyrir hvert kg af þorski ef þeim yrði úthlutuð 10 þús. tonnum. Í ljósi þess ætti að vera ein­falt að efna til útboðs á hluta aflaheimildanna og hefja þar með þá vegferð að þjóðin fái smám saman fullt verð fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni.

Ætla má að raunvirði aflaheimildar fyrir 1 kg af þorski liggi milli 150 kr., sem boðið hefur verið í aflaheimildirnar, og þeirra 480 kr. sem greitt er í leigu. Auðveldasta leiðin til að finna út „rétt“ verð væri árlegt útboð á t.d. 5-10% aflaheimildanna á meðan 90-95% þeirra sætu alltaf eftir hjá þeim sem nú hafa þær á leigu frá þjóðinni.

Höfundur er hagfræðingur




Skoðun

Skoðun

Lestu Gaza

Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar

Sjá meira


×