Körfubolti

Sabonis ekki með Lit­háen á EM

Siggeir Ævarsson skrifar
Domantas Sabonis treður yfir Kevin Durant hér um árið
Domantas Sabonis treður yfir Kevin Durant hér um árið Vísir/Getty

NBA stjarnan Domantas Sabonis, leikmaður Sacramento Kings, mun væntanlega ekki leika með Litháen á Evrópumóti karla í körfubolta síðsumars en Sabonis hefur verið að glíma við þrálát meiðsli í vetur.

Sabonis hefur verið einn af lykilmönnum Kings í vetur en hann leiðir liðið í fráköstum með 14 að meðaltali í leik og þá hefur hann skorað 19 stig og gefið rúmar sex stoðsendingar að meðaltali. Hann hefur þó misst af tólf leikjum vegna meiðsla. 

Meiðslin eru þó ekki ástæða fjarveru hans að sögn fréttamiðilsins BasketNews heldur „persónulegar ástæður“. Þær gætu mögulega verið að þær að Sabonis er sagður hugsa sér til hreyfings frá Kings í sumar.

Litháen, sem leikur í B-riðli ásamt Þýskalandi, Finnlandi, Bretlandi, Svíþjóð og Svartfjallalandi, hefur þrisvar tekið gullið heim af EM, síðast í Svíþjóð 2003 og þá varð liðið í öðru sæti 2013 og 2015. 

Sabonis, sem hefur tekið þátt í átta stórmótum með Litháen, hefur ekki tilkynnt formlega að hann verði ekki með á mótinu í ár en fastlega er reiknað með að hann geri það þegar Linas Kleiza, forseti litháenska körfuknattleikssambandsins, heimsækir Bandaríkin á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×