Brianna Stern fyrirsæta er fyrrverandi kærastan sem um ræðir. Í stefnu sem lögð var fram í Los Angeles-borg í Kaliforníu lýsir hún andlegu og líkamlegu ofbeldi af hans hálfu.
Joseph McBride, lögmaður Tate, segir í yfirlýsingu að umbjóðandi hans neiti sök og að ásakanirnar séu tilhæfulaust ráðabrugg sem eigi ekki við rök að styðjast.
Í þessari frétt er fjallað um ofbeldi í nánu sambandi. Verðir þú fyrir ofbeldi í nánu sambandi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Þá má nálgast leiðarvísi fyrir þolendur slíks ofbeldis á vef Neyðarlínunnar.
Í stefnunni er Tate sakaður um að hafa ráðist að Stern á hóteli í Beverly Hills í mars eftir að þau hófu að sofa saman. Hann hafi byrjað að niðurlægja Stern, eins og hann gerði reglulega, en á verri og ofbeldisfyllri hátt en yfirleitt.
Þá hafi hann tekið um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar. Hún hafi grátið og beðið hann um að hætta en hann tekið fastar um háls hennar með þeim afleiðingum að hún hafi nærri misst meðvitund.
Í gögnum úr dómsal sem Guardian hefur undir höndum kemur fram að Tate hafi slegið Stern ítrekað utan undir og í hvirfilinn. Á meðan hafi hann hótað að drepa hana ef hún móðgaði hann aftur.
Loks sakar Stern Tate um ítrekað andlegt ofbeldi yfir það tíu mánaða tímabil sem þau voru par, meðal annars með því að kalla hana eign sína og fávita. Leiðir þeirra lágu saman í fyrra þegar Stern ferðaðist til Rúmeníu til að vinna sem fyrirsæta.
Tate var handtekinn ásamt bróður sínum, Tristan Tate, í Rúmeníu fyrir þremur árum og voru þeir bræður ákærðir fyrir nauðganir, mansal og peningaþvætti. Þeir eru að auki eftirlýstir í Bretlandi vegna gruns um nauðgun og mansal þar. Þá stefndi kona í Bandaríkjunum þeim í síðasta mánuði fyrir að hafa þvingað sig til kynlífsverka.