Innlent

Nýtt gervigreindaræði vekur upp spurningar um höfundar­rétt

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Hlynur Helgason, varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna og dósent við Háskóla Íslands.
Hlynur Helgason, varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna og dósent við Háskóla Íslands. Vísir/Sara

Varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna segir nýtt gervigreindaræði vekja upp ýmsar spurningar varðandi höfundarrétt. Netverjar keppast við að láta gervigreindina skapa myndir sem annar ekki eftirspurn.

Ný uppfærsla hjá gervigreindarrisanum OpenAI hefur hleypt af stað æði hjá netverjum sem keppast við að umbreyta myndum svo þær líkjist stílbragði frægra teiknimynda. Æðið hefur verið svo mikið að forstjóri fyrirtækisins hefur hvatt netverja til að hætta.

Dæmi um notkun á ChatGPT til að skapa myndefni má sjá í spilaranum hér að neðan. 

Listamenn fái enga greiðslu fyrir þjálfun hugbúnaðarins

Hlynur Helgason, varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna og dósent við Háskóla Íslands, segir að þó að þessi nýja tækni bjóði upp á ýmsa möguleika þurfi ýmislegt að varast.

„Annars vegar eru þau verk sem eru ryksuguð upp af netinu sem við vitum að hafi verið gert og eru notuð til að þjálfa þetta forrit. Það er engin greiðsla fengin fyrir það. Hins vegar er það síðan hvernig fólk notar þessi forrit. Eins og kannski ef ég keyri inn mynd eftir Kjarval og læt forritið búa til mynd sem er 90 prósent eins og mynd eftir Kjarval, sem ég get gert. Þá erum við líka komin með annað vandamál því Kjarval er höfundarréttarvarinn listamaður.“

Ekki megi nota forritið í hagnaðarskyni 

Það skipti máli hvort hugbúnaðurinn sé starfræktur í hagnaðarskyni eður ei.

„Það væri í raun og veru alveg réttmætt að krefjast þess að allt sem færi inn í þessi kerfi að þau borgi einhvers konar þóknun fyrir það. Það er alveg hægt að greina hvaða listaverk hafa verið keyrð inn í þessa gagnagrunna. Það er eðli tölvukerfa.“

Sama eigi við um notendur. Óhætt sé að skapa myndir í listrænu skyni eða til tómstunda en annað gildi ef það er gert í hagnaðarskyni.

„Ef ég hins vegar bý til hönnunarvöru út frá þessu og fer að selja Simpsons-myndir eða í Simpsons-stíl. Þá er ég kominn á mjög grátt svæði. Þá ætti að vera hægt að krefja fyrirtækið mitt um greiðslu fyrir að nýta einkennandi listaverk.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×